Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. mars 2010 22:04
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
David Beckham þakkar stuðningsmönnum Man Utd fyrir
David Beckham, leikmaður AC Milan, var sáttur eftir leikinn gegn Manchester United í kvöld þrátt fyrir 4-0 tap.

Beckham var að leika í fyrsta sinn á Old Trafford síðan að hann fór frá Manchester United og hann fékk frábærar móttökur þegar að hann kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik í kvöld.

,,Þetta voru vonbrigði í kvöld því að við töpuðum en að koma hingað aftur er alltaf sérstakt," sagði Beckham.

,,Ég fékk ótrúlegar móttökur frá stuðningsmönnum United og ég verð að segja takk fyrir."

Wayne Rooney skoraði tvívegis í kvöld og er kominn með 30 mörk á tímabilinu en Beckham hrósaði honum eftir leik.

,,Hann er einn sá besti í heimi ef ekki sá besti í augnablikinu. Wayne er ástríðfullur, hann er ungur og vill læra."
Slapp
banner
banner