Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar kíkjum við á stemninguna hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Í dag er farið á Húsavík og stemningin skoðuð hjá Völsungi en liðið leikur að nýju í annarri deild í ár eftir að hafa unnið þriðju deildina í fyrra.
Völsungur tapaði ekki leik í deildinni fyrra og í vetur sigraði liðið Soccerademótið. Liðið lék því í marga mánuði án taps áður en að kom að leik gegn Val um síðustu helgi.
Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Völsungs svaraði nokkrum spurningum.
Hvernig er stemningin hjá Völsungi?
Hún er bara mjög fín. Mikið æft og menn farnir að bíða eftir sumrinu.
Eru miklar breytingar á liðinu frá því í fyrra?
Nei ekki er nú hægt að segja það. "Gömlu kallarnir" Boban Jovic og Hermann Aðalgeirsson verða ekki með okkur aftur sem og markmennirnir ungu sem við höfðum í fyrra. Við fengum Steinþór Auðunsson markmann úr KA og Jónas Halldór kom heim frá Magna svo það lítur út fyrir að breytingarnar verði ekki stórvægilegar.
Hvernig er undirbúningstímabilinu háttað hjá ykkur?
Bara æfa mikið og vel og þokkalega skipulega. Nýta allan handboltavöllinn til hins ítrasta sem við höfum til umráða inní íþróttahöllinni okkar góðu og jafnvel sparkvellina á skólalóðinni þegar snjóa leysir. Annars höfum við reynt að spila mikið af leikjum og það hefur gengið ágætlega upp.
Hefur þú verið sáttur við spilamennskuna í æfingaleikjum til þessa?
Já og nei. Við vorum frekar kærulausir í Soccerademótinu í flestum leikjunum. Fyrir vikið er erfitt að vera ánægður með unna leiki þar sem við létum kannski góðar 30-45mín duga til að vinna leikinn. Menn fá ekki nógu mikið útúr því. Annars höfum við átt fína leiki inná milli. Ég var t.d. mjög ánægður heilt yfir með þessa tvo leiki sem við spiluðum fyrir sunnan um helgina. Þar vorum við að bæta hluti sem við höfum verið að vandræðast með.
Tapið gegn Val í æfingaleik um helgina var það fyrsta í um það bil tíu mánuði. Hverju viltu þakka þennan góða árangur undanfarna mánuði?
Strákarnir eru mjög góðir í fótbolta og eru í fínu formi. Okkur hundleiðist að tapa og það sést þegar liðið spilar. Þó við eigum slæma leiki þá eru menn sannfærðir um að tapa ekki og sigurviljinn er mjög sterkur. Það er þessu að þakka.
Hver eru markmið ykkar fyrir sumarið?
Við erum að fara að setjast niður og setja okkur markmið fyrir bikarkeppnina í sumar og íslandsmótið. Það gerum við saman leikmenn og þjálfarar. Markmiðin verða líklega hóflega háleit og bærilega raunsæ en ég efa að við gefum þau út opinberlega.
Er einhver leikmaður úr liði ykkar sem þú telur að eigi eftir að springa út í sumar?
Já ég myndi segja það. Ég held að þeir verði jafnvel nokkrir. Það kæmi mér ekkert á óvart að það yrði mikið kroppað í marga af þessum strákum eftir tímabilið í haust af liðum í efri deildunum. Ég ætla samt ekkert að nefna nein nöfn.
Hvað hafa landsbyggðarliðin fram yfir lið á höfuðborgarsvæðinu og öfugt?
Ég held að það sé erfitt að stilla þessu svona upp þ.e.a.s. landsbyggð vs. höfuðborgarsvæðið. Ég held að mörg lið hafi framyfir önnur að vera samheldnari og vinna fleiri leiki á "hjartanu" í félaginu sínu. Þessi lið þurfa ekkert endilega alltaf að koma af landsbyggðinni þó það virðist oft vera svo. Ætli mestur munurinn felist ekki í aðstöðu til æfinga og keppni. Þar stöndum við á landsbyggðinni heldur höllum fæti.
Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um:
Á félagssvæði Völsungs búa tæplega 2500 manns. Kannski ekki merkileg staðreynd en þó athyglisvert að velta henni fyrir sér ef fjöldi húsvískra knattspyrnumanna undanfarin ár í fremstu röð er hafður í huga.
Eitthvað að lokum?
Vonumst eftir að sjá sem flesta Völsunga á leikjum í Lengjubikar og að sjálfsögðu í baráttunni í 2.deildinni í sumar. Áfram Völsungur!



