Grindavík 3-2 Þór:
0-1 Þorsteinn Ingason
1-1 Orri Freyr Hjaltalín
1-2 Kristján Steinn Magnússon
2-2 Jóhann Helgason
3-2 Gilles Mbang Ondo
Rautt spjald: Grétar Ólafur Hjartarson ('85)
Það var heldur betur dramatík í Akraneshöllinni í síðari leiknum sem fór þar fram í A-deild Lengjubikars karla í dag eins og í þeim fyrri. Fyrr í morgun urðu þar ótrúleg úrslit og það var líka í þetta sinn þegar Grindavík skoraði tvö mörk í lok leiksins eftir að hafa misst mann af velli.

Þorsteinn Ingason kom Þórsurum yfir með skalla eftir fyrirgjöf af kanti en Orri Freyr Hjaltalín jafnaði metin eftir klafs í kjölfar hornspyrnu.
Kristján Steinn Magnússon fékk svo stungusendingu innfyrir vörn Þórsara og kom þeim yfir og allt benti til þess að þeir væru að fara með sigur af hólmi.
Það bætti heldur ekki úr þegar varamaðurinn Grétar Ólafur Hjartarson fékk að líta rauða spjaldið á 85. mínútu fyrir að sparka til leikmanns Þórs og því léku Grindvíkingar manni færri það sem eftir var.
En klaufaskapur hjá Þórsurum varð til þess að Grindavík skoraði tvö mörk í lokin og tryggði sér sigurinn.
Fyrst skoraði Jóhann Helgason með góðu skoti utan vítateigs og svo Gilles Mbang Ondo eftir góðan undirbúning Orra Freys Hjaltalín sem plataði einn varnarmann og sendi á Ondo sem skoraði.