KA 3 - 3 FH
1-0 Andri Fannar Stefánsson
1-1 Gunnar Már Guðmundsson (Víti)
1-2 Pétur Viðarsson
2-2 Andri Fannar Stefánsson
2-3 Atli Viðar Björnsson
3-3 Andri Fannar Stefánsson
Rautt spjald: Dean Martin (KA)
1-0 Andri Fannar Stefánsson
1-1 Gunnar Már Guðmundsson (Víti)
1-2 Pétur Viðarsson
2-2 Andri Fannar Stefánsson
2-3 Atli Viðar Björnsson
3-3 Andri Fannar Stefánsson
Rautt spjald: Dean Martin (KA)
KA og FH gerðu 3-3 jafntefli í A deild Lengjubikars karla í Boganum í dag. Andri Fannar Stefánsson fór á kostum hjá KA og skoraði þrennu en heimamenn voru manni færri í um 70 mínútur eftir að Dean Martin spilandi þjálfari þeirra fékk að líta rauða spjaldið.
Andri Fannar kom KA yfir í leiknum þegar að hann spólaði sig í gegnum vörn FH og lagði boltann framhjá Gunnleifi Gunnleifssyni í markinu.
Eftir um það bil tuttugu mínútur varði Dean Martin boltann með hendi á marklínu. Martin fékk að líta rauða spjaldið og dæmd var vítaspyrna sem Gunnar Már Guðmundsson skilaði í markið.
FH-ingar létu kné fylgja kviði og komust yfir skömmu síðar þegar að Pétur Viðarsson skoraði með skalla eftir horn.
KA lagði ekki árar í bát og Andri Fannar jafnaði fyrir leikhlé þegar að hann vann boltann á miðjunni og stakk vörn FH af áður en hann renndi boltanum í fjærhornið.
Staðan var 2-2 í hálfleik en í síðari hálfleik sóttu FH-ingar þónokkuð enda manni fleiri. Þeir komust síðan yfir þegar að Atli Viðar Björnsson skoraði með föstu skoti eftir klafs í teignum.
Margir héldu að FH-ingar myndu landa sigri í kjölfarið en Andri Fannar var á öðru máli og hann kórónaði stórleik sinn með því að ná þrennunni. Andri Fannar skoraði þá með skoti á lofti í fjærhornið, óverjandi fyrir Gunnleif í markinu.
FH-ingar fengu færi til að tryggja sér sigurinn í lokin en KA hélt út og lokatölur 3-3 í fjörugum leik í Boganum.
KA-menn geta vel við unað að ná 3-3 jafntefli gegn Íslandsmeisturum FH og sérstaklega í ljós þess að gestirnir voru manni fleiri í um það bil 70 mínútur.
FH er með sjö stig eftir þrjá leiki eftir þessi úrslit en KA var þarna að ná í sitt fyrsta stig í Lengjubikarnum í ár.





