Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 15. mars 2010 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Sjúkraþjálfarahornið: Nárakviðslit
Mynd: Aðsend
Trausti Már Valgeirsson sjúkraþjálfari svarar á mánudagsmorgnum fyrirspurnum lesenda um algeng meiðsli í fótboltanum og útskýrir málið hér á Fótbolta.net. Trausti svarar í dag nýrri fyrirspurn.

Öllum er frjálst að senda Trausta fyrirspurnir og á hverjum mánudegi svarar hann einni slíkri. Sendið fyrirspurnir á netfangið: [email protected].

TRAUSTI MÁR VALGEIRSSON
Trausti Már útskrifaðist úr Læknadeild Háskóla Íslands með B.sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 2008. Hann vinnur í dag sem sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfuninni Ártúnshöfða og hjá Hreyfingu heilsulind. Hann hefur unnið mikð með íþróttafólki úr ýmsum greinum eins og til dæmis fótbolta, mótorcrossi, taekwondo og fleira
Nárakviðslit (Inguinal Hernia)

Kviðslit og náravandamál eru algeng íþróttameiðsli, sérstaklega í fótbolta, vegna þess að mikið álag er á mjaðmagrindarsvæðinu og mikil snúningsátök eru í gangi. Algengast er að nárakviðslit verður þar sem kviðveggurinn er veikastur fyrir, milli kviðs og innan læris, sjá mynd.

Við kviðslitið getur þrýstingur á taugar sem fara í gegnum þetta svæði valdið verk sem leiðir í efri hluta lærisins og niður í eistu.

Dagurinn eftir að kviðslit hefur átt sér stað getur einstaklingurinn átt í erfiðleikum með að komast fram úr rúmi eða inn og út úr bíl. Allt sem getur aukið þrýstinginn innan frá getur valdið verkjum, eins og t.d. hósti, hnerri og snöggar hreyfingar. Á byrjunarstigum kviðslits getur viðkomandi stundað íþróttir að einhverju leyti en vandamálið verður yfirleitt verra með tímanum.

Verkur í náranum og mjaðmagrindinni getur stafað af ýmsum vandamálum, eins og áverkum á mjóbak, mjaðmarlið, spjaldlið ofl. Þess vegna skiptir miklu máli að greina vandamálið rétt í upphafi. Það getur verið erfitt að greina kviðslit og það er ekki algengt að íþróttafólk hafi verið kviðslitið í nokkrar vikur eða mánuði þar til sérfræðingur á því sviði sem kemur með greininguna.

Meðferð felst í því að auka stöðugleika og styrk í vöðvum á mjaðmargrindarsvæði, en það lagar samt ekki alltaf vandamálið. Í flestum tilvikum er hægt að stunda íþróttina sína í teygjubuxum þar til viðkomandi leggst undir hnífinn, en skurðaðgerð er í flestum tilvikum eina lausnin.

Trausti Már Valgeirsson
Slapp
banner
banner
banner