Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 30. mars 2010 12:00
Magnús Már Einarsson
Hin Hliðin - Guðmundur Þórarinsson (Selfoss)
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson
Mynd: Kjartan Björnsson
Mynd: Guðmundur Karl
Mynd: Guðmundur Karl
Þá er komið að hinni hliðinni á Fótbolta.net eins og alltaf á þriðjudögum og í dag sýnir Guðmundur Þórarinsson leikmaður Selfyssinga á sér hina hliðina.

Guðmundur var valinn efnilegastur í fyrstu deildinni í fyrra en hann hjálpaði Selfyssingum þá að komast upp í Pepsi-deildina.

Smellið hér til að sjá hina hliðina á fleiri leikmönnum

Fullt nafn: Guðmundur Þórarinsson

Gælunafn: Gummi Tóta, víðivallaprinsinn

Aldur: 17 ára

Giftur / sambúð? Ekki ennþá
Börn: Nei

Hvað eldaðir þú síðast? Núðlur er það eina sem ég ræð við

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Pepperoni, hakk, chili

Uppáhaldssjónvarpsefni? Entourage og meistaradeildin

Besta bíómyndin? More than a game.. Lebron james fær nokkur hetjustig fyrir þá mynd

Uppáhaldsútvarpsstöð: Fm 957

Hver er uppáhalds platan þín? Góðar stundir með Veðurguðunum

Uppáhaldsdrykkur? Nýji Herbalife drykkurinn sem ég var að blanda mér er fínn

Uppáhalds vefsíða? Fotbolti.net passar vel við hérna

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? nei

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Vanalega er það ég sem er pirraður.. Sævar Gísla getur örugglega gefið ykkur ráð, hann virðist pirra andstæðinginn nokkuð oft

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Ef ég yrði að nefna eitt lið þá yrði það sennilega Ayamonte futbol club sem við spiluðum við útá spáni, þeir gengu útaf eftir 30 mínútur því þeir voru ósáttir við einn dóminn hjá íslenska dómaranum sem ég man ekki nafnið á

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Ég væri að ljúga ef ég myndi nefna einhvern annan en Ingólf bróðir minn og Eið Smára

Erfiðasti andstæðingur? Ronaldo er óstöðvandi í nýja fifa

Ekki erfiðasti andstæðingur? Vinstri bakvörðurinn í Ayamonte liðinu var ekkert að slá í gegn

Besti samherjinn? Selfoss liðið í fyrra er solid svar við þessu.

Sætasti sigurinn? Fjarðabyggð á útivelli í fyrra kemur fyrst upp í hugann þar sem við svo gott sem tryggðum okkur sæti í úrvalsdeild

Mestu vonbrigði? Fjarðabyggð á útivelli árið þar áður kemur fyrst upp í hugann þar sem við svo gott sem slepptum því að tryggja okkur sæti í úrvalsdeild

Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum? Chelsea

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Kaka og Ronaldo voru ágætiskaup

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Eiður Smári

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Svenni frændi

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Jón Guðbrands miðað við hvað hann skorar mikið, bæði innan og utan vallar

Fallegasta knattspyrnukonan? Sara Björk og Dóra María deila því ásamt Íbv liðinu

Grófasti leikmaður deildarinnar? Hef ekki enn spilað í þessari deild þannig ég verð að segja pass

Besti íþróttafréttamaðurinn? Gummi Ben, Hjörtur Hjartar og Höddi Magg.. Adolf ingi hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu, fínt potential í honum samt

Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Jón Guðbrands

Hefurðu skorað sjálfsmark? Já, á Shellmótinu á móti HK, vorum búnir að vinna þá tvisvar fyrir mótið en töpuðum síðan fyrir þeim á mótinu og komumst þar af leiðandi ekki í 8 liða úrslit, ég man hinsvegar ekki hvað ég grét lengi á eftir…

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Við komumst upp um deild í 2. flokk árið 2007, unnum fyrri leikinn heima 4-1.. komumst yfir 1-0 á útivelli þegar 35 mín voru eftir, þá tók hitt liðið upp á því að skora 5 mörk, við náðum hins vegar að skora á 95 mínútu og komumst þannig upp um deild, í mínum huga var þetta mark frábært ,,atvik”

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? 15 ára á móti Val í lengjubikar, frábær innkoma, kom við boltann einu sinni og gaf á næsta mann, fékk síðan að taka í spaðann á Helga Sig og Gumma Ben og fleiri góðum…

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Mjög góð síða

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? homepage

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Banna varnarvegg í aukaspyrnum, ég þoli ekki að skjóta í vegginn

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Justin Timberlake og hljómsveitina hans

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Almenn upphitun án bolta hefur aldrei heillað mig

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Unnur Birna...

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Litla gervigrasið við Vallaskóla á Selfossi

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Það fer eftir því hvað ég er að fara að gera

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Tiger Woods og LeBron James

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já Handbolta og Körfubolta hætti samt fljótlega að mæta á Fsu leiki í Iceland Express deildinni, það gekk ekki alveg nógu vel hjá þeim þegar ég mætti reyndar gekk ekki heldur vel þegar ég mætti ekki..

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Síðasta landsleik

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Hef prófað allar tegundir sem fást af Adidas og Nike skóm og ég hef ákveðið að spila í Nike CTR360 í sumar

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Ég er stúdent í stærðfræði, ég veit ekkert hvernig ég fór að því

Vandræðalegasta augnablik? check

Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Ég er með örlitila skeggrót fyrir neðan efri vörina, þetta er allt að koma
Slapp
banner
banner
banner