Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 28. apríl 2010 14:08
Magnús Már Einarsson
Emil Daði og Vilmundur í Reyni Sandgerði (Staðfest)
Emil Daði.
Emil Daði.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Reynir Sandgerði hefur fengið Emil Daða Símonarson og Vilmund Þór Jónasson á láni frá Grindavík.

Emil Daði er kantmaður og framherji en hann verður 22 ára á þessu ári.

Emil Daði er uppalinn hjá Grindavík en hann hefur verið í leikmannahópi hjá meistaraflokki síðan sumarið 2005 þegar hann lék tvo leiki í efstu deild.

Alls hefur Emil leikið nítján deildar og bikarleiki með Grindvíkingum undanfarin ár. Í fyrra lék Emil átta leiki með Grindvíkingum í Pepsi-deildinni.

Vilmundur er varnarmaður en hann verður 22 ára á þessu ári líkt og Emil.

Vilmundur þekkir til hjá Reyni því hann lék einnig með liðinu undir lokin á síðasta tímabili þar sem hann kom við sögu í tveimur leikjum.
banner
banner