Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   mán 10. maí 2010 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Gerrard ýtti í stuðningsmann Hull
Steven Gerrard, leikmaður Liverpool virtist frekar pirraður eftir markalaust jafntefli liðsins gegn Hull City í gærdag.

Þegar leikurinn hafði verið flautaður af þá náðu stuðningsmenn Hull að hlaupa inn á völlinn og það fleiri hundruð stuðningsmenn eins og má sjá á myndbandinu hér að neðan. Margir hverjir þeirra eltu enska landsliðsmanninn.

Gerrard brást illa við þegar einn stuðningsmaðurinn virtist stugga við honum og ákvað hann að ýta örlítið í hann, en málið varð þó ekki alvarlegra en það.

Breskir fjölmiðlar virðast þó vera að blása þetta frekar upp og segja þetta líkamsárás, en dæmi nú hver fyrir sig.