Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   mán 17. maí 2010 23:08
Björn Steinar Brynjólfsson
Umfjöllun: Keflvíkingar unnu Suðurnesin
Hólmar Örn Rúnarsson og Jóhann Helgason í leiknum í kvöld.
Hólmar Örn Rúnarsson og Jóhann Helgason í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Árni Antoníusson reynir að stöðva Jósef Kristinn Jósefsson.
Guðjón Árni Antoníusson reynir að stöðva Jósef Kristinn Jósefsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Scott Ramsay með boltann
Scott Ramsay með boltann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík 0 - 1 Keflavík
0-1 Jóhann Birnir Guðmundsson ('81)

Það var blíðskapar veður í Grindavík í kvöld þegar að granna slagurinn um suðurnesinn.
Leikurinn fór heldur hægt af stað og voru Keflvíkingar sem að voru sókn djarfari en heimamenn stilltu uppí 5 manna vörn sem var nokkuð þétt.

Á 7. mínútu leit fyrsta færið dagsins ljós og það var Guðmundur Steinarsson að verki hann átti viðstöðulaust skot sem fór beint í fangið á Óskari Péturssyni. Jóhann Helgason missti boltann klaufalega hægra meginn á sínum vallar helmingi þar sem að Hólmar Örn Rúnarsson tók bolta og tók eina snertingu og skaut boltanum svo hátt yfir.

Stuttu seinna átti Jóhann Helgason fínan sprett á vinstri kantinum fór framhjá tveimur og var komin að endalínu nálægt stönginni og gaf hann inní teig en Scott Ramsay var með mislagðar lappir og boltinn fór útaf.

Á 30. mínútu komu tvö færi, Jósef Kristinn Jósefsson fékk boltann eftir sendingu frá Matthíasi Erni Friðrikssyni sendi boltann inní og var Ray Jónsson mættur og skallaði boltann en beint á Ómar Jóhannsson. Ómar sendi boltann fram og var Gummi Steinars á vinstri kantinum og átti flotta sendingu inní teig sem rataði beint í fætur Magnús Þórir Matthíassyni en Óskar varði glæsilega í markinu. Eftir þetta varð svona miðju moð og lítið um færi og var flautað til hálfleiks.

Síðari hálfleikur var mun fjörugri en sá fyrri og voru liðin að skiptast á færum. Fyrsta færið áttu heimamenn. Marko Valdimar Stefánsson átti sendingu inn fyrir vörn gestanna Óli Baldur Bjarnason var mættur á boltann og var að fara að skjóta en Guðjón Árni Antóníusson náði að trufla hann og hreinsa.

Á 66. mínútu átti Guðmundur þrumusendingu inn í teig en Óskar varði boltann út og heimamenn náðu að hreinsa í hornspyrnu, hornspyrnan var tekin og Keflavík átti skot sem var erfitt að sjá hver átti en Óskar varði aftur. Heimamenn fóru í sókn þar sem Ray Jónsson átti fallega sendingu sem að Grétar Ólafur Hjartarsson rétt missti markið rétt framhjá.

Scott Ramsay slapp einn inn fyrir vörn Keflavíkur og einn á móti markmanni en Ómar varði vel í markinu. Hornspyrna var tekin og datt boltinn beint fyrir framan Orra Frey Hjaltalín en hann skaut boltanum rétt yfir markið.

Heimamenn fengu enn eitt færið þar sem að þeir fengu hraða upphlaup Grétar Hjartars brunaði upp með boltann og gaf á Jósef Kristinn Jósefsson sem var kominn í færi enn náði ekki að klára.

Eina mark kvöldsins leit kvöldsins ljós á 81.mínútu. Keflavík voru með boltann Guðjón Árni fékk boltann fyrir utan teig en Jóhann Helgason náði að pota í boltann en hann datt fyrir lappirnar á super sub-inu Jóhanni Birni Guðmundssyni sem að lagði hann í mark heimamanna. Jóhann var ekki hættur hann átti eitt dauðafæri í viðbót þegar að Guðmundur Steinarsson gaf fyrir og Jóhann Birnir var einn og óvaldur en skallaði boltann yfir.

Fleiri voru færinn ekki í þessum leik og flautaði Kristinn Jakobsson góður dómari leiksins til leiksloka.

Þessi leikur hefði getað endað með sigri báðum meigin en Keflavík náði að skora en heimamenn ekki þrátt fyrir fullt af færum í seinni hálfleik. Keflvíkingar voru þolinmóðir gegn þéttri 5 manna vörn Grindvíkinga og náðu að skora.

Áhorfendur: 1568 Aðsóknarmet slegið í kvöld.
Aðstæður: Völlurinn flottur og veðrið var fínt
Dómari leiksins: Kristinn Jakobsson (Góður)
Maður Leiksins: Guðmundur Steinarsson
banner
banner