,,Ég er ekki ánægður, ég hefði viljað fá þrjú stig út úr þessum leik. Það var allavega planið," sagði Stefán Ragnar Guðlaugsson varnarmaður Selfoss eftir 2-2 jafntefli gegn Stjörnunni í dag.
Bjarni Þórður Halldórsson markvörður Stjörnunnar sá rauða spjaldið í leiknum. En hefði Selfoss ekki átt að nýta sér það?
,,Jú í rauninni, við fengum fullmikinn tíma inni á miðjunni til að vera með boltann."

























