,,Við ætluðum okkur að sjálfsögðu að vinna þennan leik en þegar maður skoðar leikinn í heild sinni held ég að maður geti verið nokkuð ánægður með þetta stig," sagði Guðmundur Benediktsson þjálfari Selfoss eftir 2-2 jafntefli við Stjörnuna í kvöld.
,,Við vorum slakir og ekki nógu góðir í seinni hálfleik. Stjarnan nær þarna forystu en ég vil meina að vendipunkturinn hafi verið síðasta spyrna fyrri hálfleiks því við vorum í ágætum málum og spiluðum ágælega í fyrri hálfleik. Kannski kom smá reynsluleysi í ljós í lok fyrri hálfleiksins að halda ekki út forystuna og fá á okkur þetta jöfnunarmark."






















