Selfoss - Fram 1-2
1-0 Jón Guðbransson (4)
1-1 Joe Tillen (7)
1-2 Hjálmar Þórarinsson (61.mín)
1-0 Jón Guðbransson (4)
1-1 Joe Tillen (7)
1-2 Hjálmar Þórarinsson (61.mín)
94.mín: Leik lokið á Selfossi með sigri gestana í hörkuleik. Umfjöllun og viðtöl koma seinna í kvöld.
90.mín: Þá er aðeins uppbótartíminn eftir og Framarar virðast vera að sigla þessu í höfn. Enda sjómannadagurinn í dag.
88.mín: Framarar bjarga á línu eftir skalla frá Einari Ottó.
84.mín: Guðmundur Magnússon kemur inná fyrir markaskorarann Hjálmar Þórarinsson
80.mín: Selfyssingar eru aðeins að hressast og tók Jón Daði góðan sprett sem endaði með því að Jón Guðni sparkaði hann niður rétt fyrir utan teig og fékk að launum gult spjald.
77.mín: Selfyssingar fá aukaspyrnu á hættulegum stað sem Arilíus setti rétt yfir. Sævar Gísla er síðan farinn meiddur af velli fyrir Davíð Birgisson. Eins var Arilíus tekinn af velli fyrir Inga Rafn Ingibergsson.
75.mín: Það er mikið af brotum á vellinum og mikill pirringur í leikmönnum og áhorfendum. Núna liggur Sævar Þór eftir og er reyndar hoppandi útaf á öðrum fæti. Framarar gera síðan skiptingu, Joe Tillen fer af velli og Tómas Leifsson inná
73.mín: Það er allt við það að sjóða uppúr hérna, Selfyssingar eru orðnir mjög pirraðir á dómara leiksins og tók botinn úr er einn leikmanna Fram sparkaði í liggjandi mann Selfyssinga.
68.mín: Framarar fengu aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig og fór gott skot Jóns Guðna Fjólusonar réttframhjá.
65.mín: Selfyssingar gera breytingu á sínu liði, Ingólfur Þórarinsson fer af velli og baráttuhundurin Einar Ottó Antosnsson kemur inná.
61.mín: MARK Hjálmar Þórarinsson er búinn að koma gestunum yfir. Hann var alveg einn á stönginni og gat ekki annað en skorað. Selfyssingar voru brjálaðir yfir þessu og vildu líklega fá rangstöðu á Hjálmar sem var ansi innarlega.
58.mín: Jón Daði fær klaufalegt gult spjald fyrir að kasta boltanum í burtu er Framarar áttu aukaspyrnu.
54.mín: Selfyssingar eru alveg á hælunum í byrjun seinni og voru rétt búnir að skora sjálfsmark, Agnar Bragi setti boltann í þverslána á eigin marki.
51.mín: Almarr með annan góðan sprett og gott skot á mark Selfoss sem Jóhann varði vel í markinu.
49.mín:Almarr var við það að komast í gegn og datt í teignum. Ekkert víti þó og mótmæltu Framarar því svosem ekki mikið. Nokkuð þung pressa hjá gestunum hérna í upphafi seinni hálfleiks.
46.mín: Þa er seinni hálfleikur hafinn hérna á Selfossi og það eru gestirnir sem byrja með boltann. Þeir spila undan vindi í seinni hálfleik.
Hálfleikur: Maður dagsins er klárlega myndatökumaður RÚV sem er hreinlega ekki ennþá mættur og því eru bæði mörkin að öllum líkindum ekki til á video! Magnús Hlynur var engu að síður fljótur að hlaupa í skarðið og tekur nú upp eins og enginn sé morgundagurinn. En óneitanlega leiðinlegt
45.mín: Þá hefur Valgeir Valgeirsson flautað til leikhlés eftir fjörugan fyrri hálfleik.
42.mín: Jón Gunnar tók skot með vinstri fyrir utan vítateig Selfyssinga. Orðum það þannig að líklega er hann réttfættur.
40.mín: Lítið að gerast sl. mínútur og leikurinn að mestu farið fram á miðsvæðinu.
32.mín: Jón Daði Böðvarsson með hörkuskot að marki sem Hannes varði mjög vel í horn.Jón Daði hefur verið mjög sprækur í dag og spólaði sig framhjá 3-4 áður en hann lét skotið ríða af.
31.mín: Færi báðu megin, Ívar Björnsson gerði sig ágengan og lét Jóhann verja vel frá sér. Hinumegin var Arilíus enn á ný ágengur en Framarar vörðust vel.
27.mín: Sævar var hársbreidd frá því að koma Selfyssingum yfir og komst framhjá bæði vörn og Hannesi í markinu en skotið fór í hliðarnetið.
24.mín: Vallarþulurinn hérna á Selfossi bað að ósk eftirlitsmanns KSÍ áhorfendur um að vera ekki fyrir afan mörkin. Strákarnir í Skjálfta voru ekki lengi að búa til lag úr því og hjálpuðu til með að syngja "Ekki bak við mörkin". Mjög gaman að Skjálfta og þeirra lögum.
23.mín: Sævar Gísla var hársbreidd frá því að komast í gegnum vörn Framara en náði ekki nógu góðri móttöku á boltann og sóknin fjaraði út.
21.mín: Ívar Björnsson fór langt með það að prjóna sig í gegnum vörn heimamanna en komst ekki framhjá Jóhanni í markinu sem handsamaði boltann örugglega.
18.mín: Jón Daði átti ágætan sprett upp kantinn og kom boltanum á Ingó sem skaut afar lausu skoti að marki. Selfoss leikur aðeins undan vindi í fyrri hálfleik og hafa verið mun sprækari á upphafsmínútunum.
15.mín: Aðeins komin ró yfir leikinn núna eftir svakalega byrjun á leiknum. Sævar Gíslason tók nett pirringskast á dómara og vörn Framara enda ætlaði einn varnarmanna þeirra að fá far með honum án þess að fá aukaspyrnu á sig.
10.mín: Arilíus aftur í færi eftir hornspyrnu sem hann tók sjálfur. Hann fékk boltann út við vítateigshornið og átti lúmskt skot sem skoppaði rétt framhjá.
9.mín: Flott sókn hjá heimamönnum, Ingó kom með góða sendingu inn á Arilíus sem var í fínu færi en skotið var slappt og varið af vörninni.
7.mín: MARK Fram jafnar í sinni fyrstu sókn Joe Tillen komst í gegnum vörn heimamanna og setti boltann laglega framhjá Jóhanni sem var varnarlaus í markinu.
4.mín:MARK Selfoss komið yfir Pressan hélt heldur betur áfram hjá heimamönnum og endaði með marki hjá Jóni Guðbranssyni. Hörkubyrjun hjá heimamönnum.
3.mín: Kraftur í heimamönnum í byrjun, Arilíus átti laust skot inn á teignum sem Framarar náðu að hreinsa í burtu og í horn. Hornið var síðan hættulegt en endaði á skoti frá Ingó sem fór yfir markið.
2.mín: Fín mæting hér á Selfossi og stemmingin góð hér í byrjun leiks.
1.mín: Þá hefur Valgeir Valgeirsson dómari flautað til leiks á Selfossi og það eru heimamenn sem byrja með boltann.
18:50: Þegar er þó nokkuð að fólki farið að streyma á Selfossvöll og óhætt að hvetja þá sem tök hafa á því að skella sér á völlinn. Þeir sem ekki geta er einnig bent á nokkuð hlutdræga lýsingum Suðurland FM frá leiknum á www.963.is.
18:47: Það er annars suð-vestan átt hérna á Selfossi sem eru frábærar fréttir enda er austanátt farinn að teljast sem hræðilegt veður á þessum slóðum þökk sé Eyjafjallajökli.
18:45: Bæði lið eru að hita upp eins og lög gera ráð fyrir. Við hérna í fjölmiðlastúkunni erum aðeins að reyna að átta okkur á uppstillingu Selfyssinga þar sem þrír miðverðir eru í byrjunarliðinu og erum helst á því að Stefán Ragnar verði djúpur á miðjunni að vinna skítverkin fyrir Ingó og Jón Bónda Guðbrandsson.
18:30: Komiði sæl og blessuð og velkomin í beina textalýsingu frá leik Selfoss og Fram á gervigrasinu á Selfossi. Veðrið er ljómandi gott þó það sé þó nokkur hreyfing á logninu. Leikurinn byrjar á slaginu 19:15
Byrjunarliðin í dag eru nokkuð breytt frá síðasta deildarleik, Guðmundur Þórarinsson dettur út hjá Selfyssingum og inn fyrir hann kemur miðvörðurinn Kjartan Sigurðsson og hjá Fram er Halldór Hermann á bekknum eftir að hafa meiðst gegn ÍR í bikarnum. Tómas Leifsson er einnig á bekknum og inn koma þeir Joe Tillen og Jón Orri Ólafsson
Selfoss Jóhann Ólafur Sigurðsson(M), Sigurður Eyberg Guðlaugsson, Arilíus Marteinsson, Agnar Bragi Magnússon, Kjartan Sigurðsson, Andri Freyr Björnsson. Ingólfur Þórarinsson, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Jón Daði Böðvarsson, Jón Guðbrandsson, Sævar Þór Gíslason (F)
Varamenn Elías Örn Einarsson, Jón Steindór Sveinsson, Ingþór Jóhann Guðmundsson, Davíð Birgisson, Gunnar Rafn Borgþórsson, Einar Ottó Antonsson, Ingi Rafn Ingibertsson.
Fram: Hannes Þór Halldórsson(M), Daði Guðmundsson, Kristján Hauksson(F), Jón Guðni Fjóluson, Sam Tillen, Jón Gunnar Eysteinsson, Almarr Ormarsson, , Hjálmar Þórarinsson, Ívar Björnsson, Jón Orri Ólafsson, Joe Tillen
Varamenn: Ögmundur Kristinsson, Kristinn Ingi Halldórsson, Hlynur Atli Magnússon, Alexander Veigar Þórarinsson, Guðmundur Magnússon, Halldór Hermann Jónsson, Tómas Leifsson
Dómari: Valgeir Valgeirsson
Aðstoðardómarar: Sigurður Óli Þorleifsson og Jón Magnús Guðjónsson
Eftirlitsmaður: Einar K. Guðmundsson


