Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 07. júní 2010 07:58
Magnús Valur Böðvarsson
Kom inná og var rekinn af velli eftir 3 mínútur
Álftnesingar rökræða við dómarann í leiknum á föstudag.
Álftnesingar rökræða við dómarann í leiknum á föstudag.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Arnar Hólm Einarsson varnarmaður Álftaness lenti í heldur betur undarlegu atviki í leik Álftaness og Hvíta Riddarans á föstudagskvöldið en hann kom inná sem varamaður þegar 9 mínútur voru eftir af leiknum. Honum tókst að halda sér inná vellinum í heilar 3 mínútu og var þá komin með rautt vegna tveggja gulra spjalda.

Fyrst fékk hann gult þegar hann vor of seinn í tæklingu og fékk svo sitt seinna gula spjald tveimur mínútum seinna þegar dómarinn flautaði á brot þegar hann var í þann mund að skjóta boltanum. Fyrir það fékk hann gult spjald fyrir að sparka boltanum í burtu og því sitt seinna gula spjald.

Arnar var þá ekki sjálfur sáttur við ákvörðun dómarann.

,,Ég kom inná þegar 9 mínútur voru eftir og fékk eiginlega strax gult spjald þegar ég var of seinn í tæklingu," sagði Arnar við Fótbolta.net.

,,Það var alveg rétt hjá dómaranum en seinna spjaldið var bara bull, ég var að fara skjóta þegar dómarinn flautar og dæmir brot sem gerðist svona sekúndu áður og ég gat ekkert hætt við að skjóta akkurat þegar flautið kom þannig að það var fáranlegt að ég hafi fengið spjald fyrir þetta. Síðan vissi hann ekkert að ég væri kominn með spjald held að hann hefði sleppt því að gefa mér seinna gula spjaldið ef hann hefði muna að ég væri kominn með gult."

Arnar þurfti því að horfa á seinustu 6 mínútur leiksins frá áhorfendastæðinu og spilaði því einungis 3 mínútur.

,,Ég þurfti því að horfa lengur á leikinn eftir að ég fékk rautt en ég spilaði. Þeir áhorfendur sem ég spurði sögðu mér það allavega að ég hafi verið að sveifla fætinum um leið og flautan kom og það er ekkert hægt að hætta við skotið þannig að ég er mjög svekktur yfir þessu."

Álftanes vann leikinn 3-0 en missti einnig tvo menn útaf með rautt spjald áður en yfir lauk.
Slapp
banner
banner