Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 06. júní 2010 23:19
Einar Matthías Kristjánsson
Umfjöllun: Framarar sigruðu á Selfossi
Jón Guðbrandsson skoraði fyrsta mark leiksins.
Jón Guðbrandsson skoraði fyrsta mark leiksins.
Mynd: Sunnlenska.is Guðmundur Karl
Hannes átti góðan leik í marki Framara
Hannes átti góðan leik í marki Framara
Mynd: Sunnlenska.is Guðmundur Karl
Selfyssingar söknuðu Guðmundar Þórarinssonar þegar kom að föstum leikatriðum
Selfyssingar söknuðu Guðmundar Þórarinssonar þegar kom að föstum leikatriðum
Mynd: Sunnlenska.is Guðmundur Karl
Valgeir Valgeirsson dómari átti á köflum í basli með að halda þeirri línu sem hann setti í leiknum.
Valgeir Valgeirsson dómari átti á köflum í basli með að halda þeirri línu sem hann setti í leiknum.
Mynd: Sunnlenska.is Guðmundur Karl
Sævar Gíslason fór meiddur af velli þegar rúmar tíu mínútur voru eftir
Sævar Gíslason fór meiddur af velli þegar rúmar tíu mínútur voru eftir
Mynd: Sunnlenska.is Guðmundur Karl
Selfoss - Fram 1-2
1-0 Jón Guðbransson (4)
1-1 Joe Tillen (7)
1-2 Hjálmar Þórarinsson (61.mín)

Framarar gerðu góða ferð austur fyrir fjall þar sem þeir náðu sér í öll þrjú stigin sem í boði voru gegn heimamönnum í Selfoss. Líkt og áður þetta sumarið var leikið á gervigrasi og þjöppuðu rúmlega þúsund manns sér í kringum það.

Lið Framara var nokkuð hefðbundið utan þess að Halldór Hermann Jónsson var á bekknum vegna meiðsla sem hann hlaut í bikarleiknum gegn ÍR og Tómas Leifsson fór á bekkinn. Í þeirra stað komu Jón Orri Ólafsson sem var miðvörður og Joe Tillen en Jón Guðni Fjóluson fór á miðjuna. Hjá Selfyssingum var Guðmundur Þórarinsson ekki í hóp vegna meiðsla á nára sem hann varð fyrir á Akranesi fyrr í vikunni. Kjartan Sigurðsson kom inn fyrir hann og fór í miðvörðinn og Stefán Ragnar spilaði sem djúpur á miðjunni fyrir vikið.

Heimamenn byrjuðu leikinn með gríðarlegum látum og sóttu látlaust að marki Framara fyrstu fimm mínúturnar og uppskáru á þeim tíma eitt mark sem Jón Bóndi Guðbrandsson skoraði af stuttu færi eftir sendingu frá bakverðinum Andra Frey frá vinstri kanti. Frábær byrjun hjá heimamönnum og það leit út eins og Framarar væru alls ekki með á nótunum.

Þeir voru engu að síður ekki lengi að jafna metin því að Josep Tillen slapp algjörlega einn í gegn í nánast fyrsta skiptið sem Framarar komust yfir miðju í leiknum og skoraði af öryggi framhjá Jóhanni í markinu. Klaufaskapur í vörn Selfoss en á móti vel afgreitt hjá Tillen og Ívari Björnssyni sem átti sendinguna á hann.

Jöfnunarmark Framara var nokkuð áfall fyrir heimamenn sem náðu þó aftur að setja mikla pressu á mark gestana og voru miklu líklegri að bæta við mörkum fram í miðjan fyrri hálfleikinn. Það er engu að síður partur ar leiknum sem við fáum ekki að sjá þar sem myndatökumaðurinn sem átti að sjá um leikinn ákvað að skrópa í dag og var um hállftími liðinn er fréttamaðurinn skeleggi Magnús Hlynur Hreiðarsson hljóp í skarðið og mætti eldhress með myndavél.

Á 28. mínútu héldu margir að Sævar Gísla hefði komið heimamönnum yfir er hann komst í gegnum vörn Framara og framhjá Hannesi í markinu við markteigslínuna vinstramegin og nokkuð þröngt færi, en skot Sævars fór í hliðarnetið.

Þremur mínútum seinna var hætta á báðum vallarhelmingum Ívar Björnsson gerði sig líklegan hjá gestunum og átti ágætt færi sem ekkert varð úr. Strax í næstu sókn var Arilíus ágengur hinumegin á vellinum án þess að ná að klára færið.

Strax í kjölfarið átti Jón Daði Böðvarsson hörkuskot að marki sem Hannes varði mjög vel í horn.Jón Daði var mjög sprækur í dag og spólaði sig framhjá 3-4 áður en hann lét skotið ríða af.

Eftir þetta gerðist afar fátt markvert og flautaði Valgeir Valgeirsson til leikhlés um leið og 45 mínútur voru liðnar. Heimamenn voru mun sprækari í fyrri hálfleik og nöguðu sig svo sannarlega í handarbökin fyrir að hafa ekki sett annað mark á Framara þá.

Í seinni hálfleik mættu heimamenn hinsvegar ekki fyrr en 20 mínútur voru búnar af honum og þá voru Framarar búnir að skora eitt mark og liggja mjög mikið á gestunum.

Markið kom á 61.mínútu og var það Hjálmar Þórarinsson sem skoraði af innan við eins metra færi. Hjálmar virkaði afar innarlega þegar sendingin kom og mótmæltu Selfyssingar mjög kröftuglega og heimtuðu rangstöðu. Ekki annað hægt að segja en að þetta mark hafi legið í loftinu enda Framarar pressað mjög vel í upphafi seinni hálfleiks, Almarr Ormarsson var tvisvar við það að sleppa í gegn en lét verja frá sér og svo gerði Agnar Bragi Magnússon heiðarlega tilraun til að skora sjálfsmark er hann setti boltann í þverslánna á eigin marki.

Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður virtist dómaratríóið u.þ.b. vera við það að missa tökin á leiknum, mikið var um brot og pústra þar sem menn létu vel reyna á þá línu Valgeirs dómara að láta leikinn fljóta og endaði það með því að hann flautaði mun meira í lokin. Þetta fór oftar en ekki ekki mikið í taugarnar á heimamönnum sem voru pirraðir á lokakaflanum.

Á 73.mínútu gerðist umdeilt atvik þar sem leikmaður Fram virtist sparka til leikmanns Selfoss án þess að dómarinn sæji það og lenti megninu af leikmönnum liðana saman í kjölfarið. Tveimur mínútum seinna var Sævar Gíslason sparkaður niður og lá kvalinn eftirá vellinum. Það var hans síðasta framlag í leiknum og fór hann hoppandi á öðrum fæti útaf fyrir Davíð Birgisson í kjölfarið. Á sama tíma kom Ingi Rafn Ingibergsson inná fyrir Arilíus Marteinsson.

Síðasta markverða sem gerðist í leiknum var hörkufæri Einars Ottó tveimur mínútum fyrir leikslok eftir hornspyrnu en það náðu Framarar að verja á línu.

Það dugði þeim til að landa góðum sigri á Selfossi í hörkuleik. Upphafsmínútur seinni hálfleiks urðu heimamönnum að falli í dag en þeir naga sig eflaust í handarbökin fyrir að hafa ekki komið sér í betri stöðu í fyrri hálfleik þar sem þeir voru mjög beittir.

Sigur Framara þó fyllilega verðskuldaður og eru þeir til alls líklegir í sumar.




Selfoss Jóhann Ólafur Sigurðsson (M), Sigurður Eyberg Guðlaugsson, Arilíus Marteinsson (Ingi Rafn Ingibergsson ´79), Agnar Bragi Magnússon, Kjartan Sigurðsson, Andri Freyr Björnsson. Ingólfur Þórarinsson (Einar Ottó Antonsson ´66), Stefán Ragnar Guðlaugsson, Jón Daði Böðvarsson, Jón Guðbrandsson, Sævar Þór Gíslason(F) (Davíð Birgisson ´79)
Ónotaðir varamenn Elías Örn Einarsson, Jón Steindór Sveinsson, Ingþór Jóhann Guðmundsson, Gunnar Rafn Borgþórsson.

Fram: Hannes Þór Halldórsson(M), Daði Guðmundsson, Kristján Hauksson(F), Jón Guðni Fjóluson, Sam Tillen, Jón Gunnar Eysteinsson, Almarr Ormarsson, , Hjálmar Þórarinsson (Guðmundur Magnússon ´85), Ívar Björnsson (Tómas Leifsson ´77), Jón Orri Ólafsson, Joe Tillen (Kristinn Ingi Haldórsson ´90)
Ónotaðir varamenn: Ögmundur Kristinsson, Hlynur Atli Magnússon, Alexander Veigar Þórarinsson, Halldór Hermann Jónsson.

Maður leiksins:Jón Guðni Fjóluson (Fram) Færði sig inn á miðju í þessum leik og var afar öflugur.
Aðstæður: Fínar aðstæður, sól í fyrri hálfleik en nokkuð kalt í seinni er sú gula lét sig hverfa.
Áhorfendur: Rúmlega 1000 á vellinum í dag.
Dómari: Valgeir Valgeirsson, ekki hans besti leikur.
Aðstoðardómarar: Sigurður Óli Þorleifsson og Jón Magnús Guðjónsson
Eftirlitsmaður: Einar K. Guðmundsson
Slapp
banner