Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 21. júní 2010 22:48
Einar Matthías Kristjánsson
Umfjöllun: Öruggur sigur FH-inga á Selfossi
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Selfoss 0 - 2 FH
0-1 Ólafur Páll Snorrason (31)
0-2 Matthías Vilhjálmsson (59)

Íslandsmeistararnir áttu ekki í teljandi vandræðum með að ná í þrjú stig í blíðskaparveðri á Selfossi í kvöld, lokatölur voru 0-2 og hefðu vel getað verið meira afgerandi en það.

Heimamenn söknuðu sannarlega Sævar Gíslasonar sem var á bekknum í dag sökum meiðsla og náðu lítið að ógna marki FH-inga fyrr en í seinni hálfleik eftir að sá Sævar var kominn inná.

Leikurinn byrjaði þó nokkuð rólega og það var ekki fyrr en eftir um kortersleik sem FH-ingar fóru að taka meira og meira yfir leikinn og var Ólafur Páll Snorrason gríðarlega öflugur á miðjunni hjá gestunum í fyrri hálfleik.

Þegar tæplega 25.mínútur voru liðnar af leiknum átti Atli Viðar Björnsson fyrsta dauðafæri leiksins er hann komst einn gegn Jóhanni í markinu en lét verja frá sér. Stuttu seinna var klaufagangur á miðju Selfyssinga til þess að Matthías Vilhjálmsson náði mjög góðu skoti að marki sem small í þverslánni á marki Selfyssinga.

Á 31,mínútu áttu FH-ingar nokkrar hornspyrnur í röð og úr einni þeirra gerði Ólafur Páll Snorrason sér lítið fyrir og skrúfaði boltann beint í markið framhjá Jóhanni Ólafi í markinu og það í blankalogni. Stórglæsilega gert hjá Ólafi sem kórónaði með þessu góðan leik sinn en að sama skapi afar klaufalegt hjá heimamönnum. Föst leikatriði hafa verið smá akkilesarhæll hjá þeim í sumar og slær nú botninn líklega úr þegar mörkin eru farin að koma beint úr hornspyrnum.

Staðan var því 0-1 í hálfleik og ljóst að eitthvað þyrfti að breyta hjá heimamönnum sem virkuðu eins og þeir hefðu litla trú á verkefninu. Guðmundur Benidiktsson þjálfari þeirra gerði eina breytingu á liðinu og setti miðjumanninn Einar Ottó Antonsson inná fyrir Guðmund Þórarinsson sem var tæpur fyrir leik líkt og Ingólfur bróðir sinn.

Með Einari Ottó virtist komast betri holning á Selfossliðið og byrjuðu þeir seinni hálfleikinn ágætlega. Það hélst þó ekki lengi þannig og tóku FH-ingar aftur öll völd á vellinum þegar um 10.mínútur voru liðnar af seinni hálfleik.

Þeir voru líka ekki lengi að nýta sér það og bætti Matthías Vilhjálmsson öðru marki við á 59.mínútu. Hann fékk góða sendingu fyrir markið frá vinstri kanti og skallaði boltann örugglega í hornið framhjá Jóhanni í markinu.

Selfyssingar sendu Sævar Gíslason inná þegar 20.mínútur voru eftir og lagaðist leikur liðsins nokkuð við það. Agnar Bragi Magnússon miðvörður þeirra átti þó tvö bestu færi heimamanna í leiknum, annað með skalla eftir aukaspyrnu sem Arilíus tók og hitt er hann fékk fínt skotfæri á markteig eftir hornspyrnu en skaut framhjá.

Nær komust heimamenn ekki og niðurstaðan því þægilegur 0-2 sigur FH-inga sem sannarlega virðast vera komnir á beinu brautina á meðan Selfyssingar þurfa að fara girða sig í brók.



Selfoss Jóhann Ólafur Sigurðsson, Jón Sveinsson, Agnar Bragi Magnússon, Andri Freyr Björnsson, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Arilíus Marteinsson (Ingi Rafn Ingibergsson´78), Guðmundur Þórarinsson (Einar Ottó Antonsson ´45), Jón Guðbrandsson, Jón Daði Böðvarsson, Davíð Birgisson, Ingþór Guðmundsson (Sævar Þór Gíslason ´70),
Ónotaðir varamenn Elías Einarsson, Kjartan Sigurðsson, Gunnar Rafn Borgþórsson, Viðar Örn Kjartansson, Sigurður Eyberg Guðlaugsson.

Lið FH: Gunnleifur Gunnleifsson, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason (Jakob Neestrup´69), Pétur Viðarsson, Matthías Vilhjálmsson, Atli Guðnason (EInar Karl Ingvarsson´86), Guðmundur Sævarsson, Hjörtur Logi Valgarðsson, Hákon Hallfreðsson, Ólafur Páll Snorrason (Torger Motland´81), Atli Viðar Björnsson, .
Ónotaðir varamenn: Gunnar Sigurðsson, Jón Ragnar Jónsson, Örn Rúnar Magnússon, Helgi Valur Pálsson.

Aðstæður: Blankalogn og toppveður fyrir fótbolta.
Dómari: Magnús Þórisson, átti fínan leik.
Áhorfendur: 823
Maður leiksins: Ólafur Páll Snorrason, var mjög góður á miðjunni og kórónaði leikinn með því að skora úr hornspyrnu í logni.
Slapp
banner
banner