,,Ég er drullufúll," sagði Andri Marteinsson þjálfari Hauka við Fótbolta.net eftir 3-2 tap liðsins gegn Grindavík í kvöld.
Haukar komust í 2-0 í leiknum í kvöld en misstu forskotið niður líkt og í síðustu tveimur leikjum gegn Breiðablik og Keflavík.
,,Það er ekkert annað að gera heldur en að fá trú á verkefnið. Ég held að það sé svolítið sá partur sem vantar í þennan hóp hjá mér, að þeir hafi trú á að þeir geti komist yfir þennan þröskuld og byrjað að sigra."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























