Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   mán 21. júní 2010 23:32
Gísli Erlendur Marinósson
Umfjöllun: Frábær endurkoma hjá Grindavík
Gilles Mbang Ondo skoraði tvennu annan leikinn í röð.
Gilles Mbang Ondo skoraði tvennu annan leikinn í röð.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Arnar Gunnlaugsson skoraði eitt mark og lagði upp annað fyrir Hauka.
Arnar Gunnlaugsson skoraði eitt mark og lagði upp annað fyrir Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Jósef Kristinn átti góðan leik í kvöld og lagði upp sigurmarkið.
Jósef Kristinn átti góðan leik í kvöld og lagði upp sigurmarkið.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Það var hart barist á Vodafone vellinum í kvöld.
Það var hart barist á Vodafone vellinum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Haukar 2-3 Grindavík
1-0 Arnar Gunnlaugsson (18')
2-0 Hilmar Geir Eiðsson (42')
2-1 Orri Freyr Hjaltalín (62')
2-2 Gilles Mbang Ondo (78')
2-3 Gilles Mbang Ondo (79')

Haukar og Grindavík mættust á Vodafone vellinum í kvöld í miklum fallslag. Fyrir leikinn voru liðin í tveimur neðstu sætunum með 3 stig og lá ljóst fyrir að sigur myndi duga hvorugu liðinu til að komast upp úr fallsæti, þó að það myndi vissulega bæta stöðu þeirra í fallbaráttunni.

Leikurinn fór nokkuð rólega af stað og pressuðu liðin til skiptis. Fyrsta alvöru færi leiksins kom ekki fyrr en á 18. mínútu og það endaði með marki. Sam Mantom, sem í kvöld spilaði sinn seinasta leik fyrir Hauka, fékk þá góða stungusendingu inn fyrir Grindavíkurvörnina og lagði boltann út í teiginn á Arnar Gunnlaugsson sem setti hann auðveldlega í markið.

Grindvíkingar reyndu eftir þetta að skapa sér færi og voru þeir nokkrum sinnum nálægt því að skora en þó vantaði alltaf herslumuninn. Jósef Kristinn Jósefsson komst í góða skotstöðu inni í vítateig en Daníel Einarsson gerði vel í að renna sér fyrir boltann. Stuttu síðar vildu einhverjir Haukar fá vítaspyrnu þegar boltinn virtist fara í höndina á Ray Anthony Jónssyni, en Kristinn Jakobsson dæmdi ekkert.

Gestirnir héldu síðan áfram að sækja og komust í sannkallað dauðafæri eftir rúmlega hálftíma leik, en þá slapp Gilles Mbang Ondo inn fyrir en Daði Lárusson varði skot hans vel. Matthías Örn Friðriksson náði síðan frákastinu en Daði var snöggur að bregðast við og náði að handsama knöttinn. Ondo fékk síðan gott færi stuttu seinna þegar Óli Baldur Bjarnason nýtti sér varnarmistök heimamana og renndi boltanum fyrir markið þar sem Ondo átti máttlítið skot sem fór beint á Daða í markinu.

Haukarnir létu þennan sóknarþunga gestanna ekki aftra sér og þegar um 5 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik náði Arnar skoti úr vítateignum sem fór framhjá. Einungis mínútu síðar náðu þeir að bæta við öðru marki, en þá átti Arnar góða sendingu í vítateiginn þar sem Hilmar Geir Eiðsson náði góðu skoti sem fór í fjærstöngina og inn. Stuttu seinna var flautað til hálfleiks.

Í upphafi seinni hálfleiks virtist sem heimamenn ætluðu að bæta við. Sam Mantom átti hörkuskot rétt fyrir utan vítateiginn sem Rúnar Dór Daníelsson varði vel í horn. Stuttu síðar átti Hilmar Geir Eiðsson góðan sprett upp hægri kantinn og sendi fyrir markið þar sem Úlfar Hrafn Pálsson var í upplögðu færi en hann hitti boltann illa og Rúnar Dór náði að handsama boltann.

Þegar um klukkutími var liðinn af leiknum tóku Grindvíkingar síðan við sér. Jósef Kristinn Jósefsson komst í gott færi en Daði Lárusson varði vel frá honum í horn. Gestirnir náðu síðan að minnka muninn upp úr hornspyrnunni en Auðun Helgason skallaði hana niður í teiginn á Orra Frey Hjaltalín sem tók á móti boltanum, snéri sér á teignum og setti hann í gegnum þvögu sem sem myndast hafði í teignum og í markið.

Leikurinn róaðist nokkuð eftir þetta og gerðist fátt markvert næstu mínútur, nema þá helst þegar Hilmar Geir átti hörkuskot sem fór af varnarmanni gestanna og rétt fram hjá. Þegar um það bil korter var eftir af leiknum náði Grindvíkingar síðan að klára leikinn með tveimur mörkum á stuttum tíma. Fyrst komst Scott Ramsay inn í vítateiginn og renndi boltanum fyrir markið þar sem Gilles Mbang Ondo var mættur og jafnaði leikinn.

Það leið síðan ekki nema mínúta þangað til sigurmarkið kom. Þá átti Jósef Kristinn Jósefsson góða sendingu inn fyrir vörnina á Gilles Mbang Ondo sem náði að setja boltann fram hjá Daða í marki Hauka. Haukarnir reyndu eftir þetta að sækja á gestina en þeir náðu ekki að skapa sér færi og því endaði leikurinn 3-2 fyrir Grindavík, sem unnu þarna sinn annan leik í röð og eru núna einungis stigi frá því að færast upp úr fallsæti.

Byrjunarlið Hauka: Daði Lárusson, Pétur Örn Gíslason, Kristján Ómar Björnsson, Guðjón Pétur Lýðsson, Úlfar Hrafn Pálsson, Hilmar Geir Eiðsson (Ásgeir Þór Ingólfsson 66'), Arnar Gunnlaugsson, Gunnar Ormslev Ásgeirsson (Jónmundur Grétarsson 82'), Daníel Einarsson, Guðmundur Viðar Mete (Hilmar Rafn Emilsson 77'), Sam Manton
Ónotaðir varamenn: Amir Mehica, Jónas Bjarnason, Grétar Atli Grétarsson, Stefán Daníel Jónsson

Byrjunarlið Grindavíkur: Rúnar Dór Daníelsson, Óli Baldur Bjarnason (Alexander Magnússon 85'), Ray Anthony Jónsson, Auðun Helgason, Marko Valdimar Stefánsson (Grétar Ólafur Hjartarson 44'), Jóhann Helgason, Matthías Örn Friðriksson (Loic Mbang Ondo 72'), Scott Ramsay, Orri Freyr Hjaltalín, Gilles Mbang Ondo, Jósef Kristinn Jósefsson
Ónotaðir varamenn: Óskar Pétursson, Páll Guðmundsson, Guðmundur Egill Bergsteinsson, Jóhann Helgi Aðalgeirsson.

Maður leiksins: Jósef Kristinn Jósefsson - átti marga góða spretti og lagði upp sigurmarkið.
Gul Spjöld: Gilles Mbang Ondo (63') Matthías Örn Friðriksson (69')
Áhorfendafjöldi: 495
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner