Arnar Gunnlaugsson: Skelfilegt að horfa á þetta
,,Það voru mikil mistök á báða bóga, það var eins og menn gætu ekki sent tvær sendingar á milli sín," sagði Arnar Bergmann Gunnlaugsson leikmaður Hauka við Fótbolta.net eftir markalaust jafntefli við Fram í dag.
,,Við erum búnir að taka stig núna á fjórum mjög erfiðum útivöllum og stig er betra en ekki neitt. Það var gullið tækifæri til að vinna Fram í dag."
,,Það var svakalegt slen yfir þeim og þeir voru jafnvel ennþá verri en við að halda boltanum, ég man ekki eftir að þeir hafi náð að senda tvær sendingar á milli sín, það var skelfilegt að horfa á þetta. Að sama skapi náðum við ekki að nýta okkur þetta."
Haukar eru eftir þessi úrslit sem fyrr á botni deildarinnar með fjögur stig en liðið er ennþá að bíða eftir sínum fyrsta sigri í sumar.
,,Við erum búnir að gera fjögur góð jafntefli en við verðum að fara að vinna því það er svo rosalega dýrkeypt að gera bara jafntefli þegar það er þriggja stiga regla. Á meðan Selfoss og Grindavík tapa og við gerum jafntefli þá er það í góðu lagi."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.





















