Umfjöllun: Bragðdauft jafntefli í Laugardalnum
Fram 0 - 0 Haukar
Það er hægt að segja ýmislegt um leik Fram og Hauka sem fram fór í dag en það verður þó seint sagt að leikurinn hafi verið augnakonfekt fyrir þá rúmlega 500 áhorfendur sem sáu sér fært að mæta á Laugardalsvöllinn.
Liðin skildu jöfn í afar bragðdaufum leik og þar mistókst Frömurum að ná toppsætinu á meðan Haukar nældu í sitt fjórða jafntefli á útivelli í sumar.
Aðstæður voru frábærar til knattspyrnuiðkunnar en liðunum gekk þrátt fyrir það illa að spila boltanum og skapa sér góð færi. Þegar að leikmenn fengu síðan tækifæri til að skjóta voru þeir tilraunir ekki vel nýttar en markverðirnir Daði Lárusson og Hannes Þór Halldórsson áttu afar náðugan dag.
Í raun gerðist nánast ekkert markvert fyrstu 70 mínúturnar, Jón Guðni Fjóluson bjargaði Frömurum einu sinni á síðustu stundu þegar hann náði að tækla Úlfar Hrafn Pálsson í markteignum og á hinum enda vallarins átti Ívar Björnsson ágætis skalla rétt yfir.
Þegar einhverjir áhorfendur voru við það að sofna í síðari hálfleiknum ákváðu leikmenn að setja aðeins meira púður í sóknarleikinn og síðustu 20 mínúturnar voru skemmtilegri.
Daníel Einarsson átti skalla framhjá fyrir Hauka og Hannes Þór Halldórsson, markvörður Fram, varði einnig skot frá varamanninum Stefáni Daníeli Jónssyni.
Framarar fengu nokkur fín færi en þeir voru ekki með skotskóna reimaða á sig og tilraunir þeirra hittu ekki markið. Joe Tillen hitti ekki boltann í góðu færi og þeir Ívar Björnsson og Halldór Hermann Jónsson skutu einnig framhjá úr góðum færum.
Á lokasekúndunum skaut Ásgeir Þór Ingólfsson síðan í hliðarnetið fyrir Hauka en boltinn vildi ekki inn frekar en fyrr í leiknum og lokatölur 0-0 í Laugardalnum.
Framarar hljóta að vera svekktir að ná ekki í meira út úr heimaleik gegn botnliði deildarinnar en þeir áttu hins vegar ekkert meira skilið í dag. Leikmenn liðsins virkuðu ekki jafn sprækir og oft áður í sumar en varnarleikurinn var þó nokkuð þéttur sem fyrr.
Haukar eru ennþá að bíða eftir fyrsta sigri sínum í sumar en liðið hefur náð fínum úrslitum á útivelli. Leikmenn lisins börðust vel í dag og héldu hreinu í fyrsta sinn í sumar sem skilaði Haukum verðskulduðu stigi þó að þeir hafi lítið ógnað marki Framara.
Jafnteflið í dag var það fjórða á útivelli hjá Haukum í sumar en liðið hefur einnig náð í stig gegn KR, Stjörnunni og Keflavík á útivelli. Haukar verða hins vegar að fara að fá eitthvað út úr heimaleikjum sínum ef ekki á illa að fara og næsta tækifæri til þess er gegn Fylki um næstu helgi.
Fram: Hannes Þór Halldórsson, Daði Guðmundsson, Jón Orri Ólafsson, Jón Guðni Fjóluson, Sam Tillen, Tómas Leifsson, Halldór Hermann Jónsson, Jón Gunnar Eysteinsson (Hlynur Atli Magnússon 87), Almarr Ormarsson (Guðmundur Magnússon 77), Ívar Björnsson, Hjálmar Þórarinsson (Joe Tillen 65).
Ónotaðir varamenn: Kristinn Ingi Halldórsson, Hörður Björgvin Magnússon, Alexander Veigar Þórarinsson, Ögmundur Kristinsson.
Haukar: Daði Lárusson, Pétur Örn Gíslason, Gunnar Ásgeirsson, Daníel Einarsson, Kristján Ómar Björnsson, Guðjón Pétur Lýðsson, Ásgeir Þór Ingólfsson, Hilmar Rafn Emilsson (Grétar Atli Grétarsson 78), Hilmar Geir Eiðsson, Arnar Bergmann Gunnlaugsson, Úlfar Hrafn Pálsson (Stefán Daníel Jónsson 67).
Ónotaðir varamenn: Þórhallur Dan Jóhannson, Ísak Örn Einarsson, Jónmundur Grétarsson, Pétur Ásbjörn Sæmundsson, Amir Mehica.
Aðstæður: Frábærar, veðrið gott og völlurinn flottur.
Áhorfendur: 503
Dómari: Magnús Þórisson
Maður leiksins: Daníel Einarsson (Haukar)


