mán 28. júní 2010 16:28
Magnús Már Einarsson
Úlfar Hrafn ekki alvarlega meiddur
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Úlfar Hrafn Pálsson, leikmaður Hauka, er ekki alvarlega meiddur eins og óttast var þegar hann var borinn af velli gegn Fram í gær.

Úlfar Hrafn meiddist á ökkla í síðari hálfleiknum í gær og í fyrstu var jafnvel óttast að hann væri brotinn.

,,Þetta lítur miklu betur út en við héldum," sagði Úlfar Hrafn við Fótbolta.net í dag.

,,Ég hélt að ég væri búinn að stúta tímabilinu en það er í rauninni ekkert að. Þetta var bara sjokk."

,,Sjúkraþjálfinn reddaði þessu alveg með að kæla þetta strax og dæla í mig bólgeyðandi,"
sagði Úlfar Hrafn sem býst við að ná leiknum gegn Fylki næstkomandi sunnudag.

Úlfar Hrafn hefur leikið alla leiki Hauka í Pepsi-deildinni í sumar en hann skoraði í jafntefli liðsins gegn KR í fyrstu umferðinni.
Slapp
banner
banner