Selfoss 1-3 Breiðablik
0-1 Kristinn Steindórsson (45)
1-1 Einar Ottó Antonsson (56)
1-2 Guðmundur Pétursson (66)
1-3 Kristinn Steindórsson (90)
Rautt spjald: Ingi Rafn Ingibergsson
0-1 Kristinn Steindórsson (45)
1-1 Einar Ottó Antonsson (56)
1-2 Guðmundur Pétursson (66)
1-3 Kristinn Steindórsson (90)
Rautt spjald: Ingi Rafn Ingibergsson
Breiðablik skellti sér á toppinn í Pepsi deildinni með góðum sigri á Selfossi í kvöld. Leikurinn var reyndar nokkuð jafn og kaflaskiptur.
Fyrri hálfleikur var reyndar mjög rólegur og lítið um opinn færi sem vert er að tala um, helst var það að hornspyrnur væru að stríða heimamönnum eins og svo oft áður í sumar. Reyndar skoruðu gestirnir tvisvar í fyrri hálfleik en þau mörk komu bæði löngu eftir að Jóhannes Valgeirsson dómari hafði flautað rangstöðu.
Hættulegustu sóknartilburði Selfyssinga í fyrri hálfleik áttu þeir Sævar Þór og Jón Daði sem endaði á því að sá fyrrnefndi átti afar slæmt skot sem endaði í innkasti eftir gott spil þeirra á milli.
En þegar allir voru að búa sig undir kærkominn kaffibolla í kuldanum á Selfossi fengu Blikar hornspyrnu sem þeir nýttu til fullnustu. Kristinn Jónsson sendi boltann beint í lappirnar á Kristni Steindórssyni sem laumaði honum í hornið. 0-1 því staðreynd eftir bókstaflega síðustu spyrnu fyrri hálfleiks. Afar svekkjandi fyrir heimamenn sem hafa gert sig seka um þetta áður í sumar.
Heimamenn komu vel grimmir til leiks í seinni hálfleik og jafnaði Einar Ottó Antonsson metin á 56.mínútu. Hann vann þá boltann á miðjunni, spólaði sig í gegnum vörn Blika og lék á Kale í markinu og setti boltann örugglega í netið. Stórvel gert hjá honum þar.
Blikar svöruðu síðan á 66.mínútu er Guðmundur Pétursson kom þeir aftur yfir, hann laumaði boltanum í hornið framhjá sofandi vörn heimamanna sem höfðu verið nokkuð sprækir eftir markið hjá Einari Ottó.
Strax í næstu sókn átti Sævar Þór Gíslason eitt mesa klúður ársins er hann renndi boltanum framhjá eftir að því er virðist opnu marki. Jón Daði hafði þá spólað sig vel í átt að marki og átt skot sem Ingvar Kale varði í marki Blika en frákastið endaði hjá Sævari Þór sem trúir því ekki ennþá að hann hafi ekki skorað þarna.
Þegar leið að leikslokum reyndi Gummi Ben að blása til stórsóknar og skipti Inga Rafni inná sem varamanni fyrir Jón Sveinsson. Það fór þó ekki betur en svo að Kristinn Steindórsson gulltryggði sigur gestana með marki á 90.mínútu og til að toppa það fékk Ingi Rafn rautt spjald, um fimm mínútum eftir að hann kom inná.
Góður sigur Blika því staðreynd gegn nokkuð lánlausum Selfyssingum sem naga sig í handarbökin fyrir að hafa ekki fengið meira út úr þessum leik
Byrjunarlið Selfoss: Jóhann Ólafur Sigurðsson(M), Agnar Bragi Magnússon, Kjartan Sigurðsson, Ingólfur Þórarinsson, Jón Steindór Sveinsson, Sævar Þór Gíslason(F), Davíð Birgisson, Guðmundur Þórarinsson, Jón Daði Böðvarsson, Jón Guðbrandsson, Einar Ottó Antonsson.
Varamenn: Elías Örn Einarsson, Andri Freyr Björnsson, Ingþór Jóhann Guðmundsson, Gunnar Rafn Borgþórsson, Viðar Örn Kjartansson, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Ingi Rafn Ingibergsson.
Breiðablik. Ingvar Kale (M), Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Kári Ársælsson (F), Guðmundur Pétursson, Kristinn Jónsson, Finnur Orri Margeirsson, Jökull Elísabetarsson, Olgeir Sigurgeirsson, Kristinn Steindórsson, Alfreð Finnbogason, Guðmundur Kristjánsson.
Varamenn Sigmar Ingi Sigurðsson, Árni Kristinn Gunnarsson, Ranndver Sigurjónsson, Elvar Páll, Sigurðsson, Sverrir Ingi Ingason, Bjarki Aðalsteinsson, Andri Rafn Yeoman.
Dómari: Jóhannes Valgeirsson
Aðstoðardómarar: Smári Stefánsson og Viðar Helgason
Áhorfendur: 1.023
Maður leiksins Kristinn Steindórsson




