Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   þri 06. júlí 2010 18:05
Hafliði Breiðfjörð
Leikmaður umferðarinnar: Virkilega erfitt að fara frá Íslandi
Kvenaboltinn
Helen Alderson.
Helen Alderson.
Mynd: Grindavík
Nokkrir liðsfélagar Alderson eftir bikarleik á Sauðárkróki í sumar.
Nokkrir liðsfélagar Alderson eftir bikarleik á Sauðárkróki í sumar.
Mynd: Ómar Bragi Stefánsson
Úr leik hjá Grindavík í fyrra.
Úr leik hjá Grindavík í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
,,Það kemur skemmtilega á óvart að vera valin leikmaður umferðarinnar. Það eru svo margir leikir í hverri viku og svo margir hæfileikaríkir leikmenn, það er mikill heiður að vera tekin út fyrir frammistöðu mína," sagði Helen Alderson markvörður kvennaliðs Grindavíkur sem var valin leikmaður 8. umferðar í Pepsi-deild kvenna fyrir frammistöðuna gegn Val á dögunum.

,,Ég var að mestu ánægð með frammistöðu mína, en það voru samt hlutir sem ég myndi gera öðruvísi ef ég spilaði þennan leik aftur! Liðið stóð sig vel í heild sinni, sérstaklega varnarlega, og það hjálpaði mér mikið."

,,Það að vita að ég er með sterka vörn fyrir framan mig gefur manni mikla ró. Eftir leikinn voru stelpurnar vonsviknar yfir að hafa tapað, mér finnst það sýna hversu langt við höfum komist sem lið á leiktíðinni, að við búumst við að geta sýnt toppliðunum samkeppni. Það er gott að geta sett sér svo háleit markmið og mun hjálpa okkur að bæta okkur í framtíðinni."


Alderson leikur með Sunderland á Englandi en hefur leikið með Grindavík í sumar. Við spurðum hana út í muninn á íslensku og ensku deildinni.

,,Þegar ég kom hingað til Íslands vissi ég ekki hverju ég átti að búast við," sagði Alderson. ,,Ég var ánægð að sjá hversu mikil gæði eru í deildinni, og lítill munur á íslensku og ensku deildinni."

,,Það sem mér fannst best við deildina er hversu mikla ástríðu og baráttu stelpurnar hafa, á meðan leiknum stendur hættir engin að hlaupa, þær henda sé fyrir boltann til að stoppa sendingu eða skot, og viðhorfið hjá öllum er frábært. Íslenski fótboltinn hefur tekið svo miklum framförum á undanförnum árum, og er þegar farin að keppa bæði landslið og félagslið við bestu þjóðir heims. Mér finnst framtíð fótboltans í þessu landi mikil."


Alderson hefur leikið með Grindavík síðan í maí en nú styttist í að hún yfirgefi félagið í næstu viku og haldi til Sunderland sem hún leikur með í ensku kvennadeildinni.

,,Ég hef notið hverrar einustu sekúndu sem ég hef verið hérna og það verður virkilega erfitt að fara. Ég missti af síðustu leiktíð á Englandi vegnameiðsla, svo skipti mín til Grindavíkur komu á fullkomnum tíma. Það hefur hjálpað mér að byggja upp leikform mitt og sjálfstraust að koma hingað auk þess sem ég hef náð að vinna í hlutum í leik mínum sem þurfti að bæta."

,,Félagið og leikmennirnir hafa tekið mér verulega vel og ég fékk strax að finna að ég færi hluti af hópnum. Það er frábært að vera hluti af félagi sem er að fara í rétta átt. Stelpurnar hafa allar alist upp saman og eru stöðugt að læra og bæta sig. Ég efast ekkert um að í nánustu framtíð verði Grindavík gott lið í íslenska fótboltanum."


Alderson hefur á þeim tíma sem hún hefur verið hjá Grindavík haldið hreinu fjórum sinnim og aðeins fengið á sig fjögur mörk svo hún getur verið ánægð með sitt framlag fyrir félagið.

,,Heilt yfir hef ég verið sátt. Eftir hvern einasta leik set ég mér markmið um hvað ég þarf að bæta fyrir næsta leik, til dæmis að vera sneggri, eða bæta hreyfanleika minn. Með hjálp þjálfara og leikmanna hef ég náð að vinna í þessum hlutum og hef bætt mig. Eins og ég hef áður sagt, frammistaða mín kemur aðallega til vegna þess að ég er hluti af svo góðu liði. Við búumst við miklu af hvorri annarri, en ef það gengur ekki vel þá hvetjum við hvor aðra. Það gerir það miklu auðveldara að standa sig vel þegar það er svona jákvætt andrúmsloft hjá félaginu."

Grindavík mætir Fylki svo á útivelli í 9. umferð deildarinnar í kvöld og að lokum spurðum við Alderson út í þann leik.

,,Ég hlakka til leiksins. Fylkir er mjög gott lið og eru á svipuðum slóðum og við í Grindavík í deildinni. Þetta verður mjög spennandi leikur fyrir áhorfendur því bæði lið vilja vinna og ég er viss um að við förum út allar út á völlinn til að gera það. Við í Grindavík verðum að fara með sama sjálfstraust í leikinn og við höfum sýnt undanfarnar vikur. Ef það gerist er ég viss um að þetta verður hörkuleikur."
Slapp
banner