Auðunn Helgason fagnar því líklega að í dag er frí á HM enda einn af spekingum RÚV sem hafa farið á kostum í sumar.
Ingi Rafn spilaði innan við fimm mínútur í síðasta leik áður en hann fékk rautt og er því í banni í dag.
Grindavík - Selfoss 1-1
1-0 Grétar Ólafur Hjartarson (22)
1-1 Jón Daði Böðvarsson (55)
1-0 Grétar Ólafur Hjartarson (22)
1-1 Jón Daði Böðvarsson (55)
93.mín Selfyssingar eiga horn hérna í uppbótartíma sem er nýlunda fyrir þeim en það fer framhjá og þar með er leiknum lokið. Umfjöllun kemur hér inn eftir smá stund.
88.mín Alexander kemur inná fyrir Scott Ramsey
88.mín Þó nokkur spenna hérna á Grindavíkurvelli á lokakaflanum.
83.mín Jón Guðbrandsson kemur af velli fyrir bakvörðinn Andra Frey Björnsson. VIð það fer Guðmundur Þórarinsson ofar á völlinn hjá Selfyssingum.
81.mín Selfyssingar með þunga pressu og í tvígang við það að komast í gegn en Grindvíkingar ná að hreinsa í horn.
75.mín Jón Guðbrandsson var rétt kominn í gegn eftir misheppnað skot frá Sævari Gísla en Rúnar Dór var með allt á hreinu í markinu.
72.mín Ingólfur Þórarinsson fer útaf enda ábyrgur fyrir þessu roki hérna í Grindavík og inná kemur Arilíus Marteinsson sem var í banni í síðasta leik.
70.mín Það eru 778 manns á vellinum og af því tilefni fær Jósef Kristinn gult spjald eftir brot á Ingólfi Þórarinssyni.
65.mín Grindvíkingar hafa verið sterkari eftir markið hjá Selfyssingum og er Gilles Ondo að gera vörn Selfyssinga lífið leitt.
63.mín Enn eru Grindvíkingar að sóa dauðafærum!! Núna var Grétar Ólafur að leggja upp mark hreinlega fyrir Gilles Ondo en skot hans fór í hliðarnetið. Flestir héldu í fyrstu að þetta hefði verið inni.
61.mín Óli Baldur kemur inná fyrir Pál Guðmundsson.
59.mín Sævar Gísla og Loic Ondo stíga léttann dans á vellinum og fá föðurlegt tiltal frá Erlendi Eiríkssyni dómara.
57.mín. MARK SELFYSSINGAR HAFA JAFNAÐ Jón Daði Böðvarsson með markið eftir hornspyrnu frá Guðmundi Þórarinssyni. Hann skallaði í slánna og inn. Reyndar er ekki alveg ljóst hvort að það var Jón Daði sem átti síðustu snertingu á boltann eða Auðunn Helgason miðvörður Grindavíkur en við gefum Jóni Daða það þar til annað kemur í ljós.
54.mín Gilles Ondo fer illa með Kjartan Sigurðsson og kemst upp að endamörkum og nær góðri sendingu fyrir á Pál Guðmundsson sem var í frábæru færi en skaut yfir.
52.mín Selfyssingar hafa greinilega fengið fullt skotleyfi á markið og skjóta vilt og galið úr hinum ýmsu stöðum. Nú síðast Einar Ottó en það fór nokkuð framhjá.
49.mín Guðmundur Þórarinsson með frábært skot í þverslánna eftir aukaspynru af þrjátíu metra færi, Jón Guðbransson náði frákastinu og skaut en Gríndvíkingar vörðust. Boltinn barst til Davíð Birgssonar sem skoraði en var dæmdur rangstæður! Það hefði verið gott að sjá þetta endursýnt. Allt annað Selfoss lið inná núna í upphafi seinni.
48.mín Stefán Ragnar með langt innkast og Kjartan Sigurðsson með skot en það rúllar framhjá markinu nokkuð hættulaust.
46.mín Ingólfur Þórarinsson er ekkert að drolla við þetta og á ágætt skot í fyrstu sókn Selfyssinga en boltinn fór framhjá.
46.mín Þá er seinni hálfleikur hafinn.
45.mín Þá er búið að flauta til leikhlés og þrátt fyrir góða lokamínútu í fyrri hálfleik held ég að Selfyssingar séu guðslifandi fegnir að fá leikhlé. Þeir voru ljónheppnir að sleppa einungis 1-0 undir í hálfleik og leika undan sterkum vindi í seinni hálfleik.
44.mín Kjartan Sigurðsson af öllum mönnum í dauðafæri hjá Selfyssingum eftir góðan undirbúning hjá Jóni Daða en Rúnar Dór varði vel í markinu. Aðeins komið líf í Selfyssinga núna
40.mín Stuðningsmenn Grindavíkur kalla sig Stinningskaldi og ég efa að það sé tilvljun.
37.mín Grindvíkingar fá óbeina aukaspyrnu innan teigs á Einar Ottó fyrir hindrun en það er illa nýtt hjá heimamönnum, Ramsey með laust skot sem Jóhann Ólafur átti ekki í neinu basli með. Þeir fara líklega yfir þetta í Pepsi mörkunum í kvöld.
33.mín Scott Ramsey með nokkuð lúmskt skot sem Jóhann Ólafur ver naumlega í horn.
28.mín Smá líf í Selfyssingum núna og hafa þeir í tvígang skapað hættu á teig Grindvíkinga á sömu mínútunni, fyrst eftir horn frá Guðmundi Þórarinssyni og síðan eftir skalla hjá Jóni Daða eftir góða fyrirgjöf frá Ingólfi Þórarinssyni.
26.mín Selfyssingar gera eins og þeir geta til að komast að marki heimamanna en komast lít áleiðis gegn sterkri vörn Grindavíkur.
23.mín Enn er Jóhann Ólafur að bjarga sínum mönnum nú með góðri markvörslu frá Jóhanni Helgasyni. Selfyssingar eiga í tómu basli gegn vindinum.
22.mín MARK GRINDAVÍK KOMIÐ YFIR Grétar Ólafur hefur komið Grindvíkingum í 1-0. Hann komst einn í gegn og renndi honum örugglega framhjá Jóhanni Ólafi í markinu. Þetta lá í loftinu.
21.mín Enn er Gilles Ondo að stríða vörn Selfyssinga og komst í gegn og náði góðu skoti með jörðinni af stuttu færi sem Jóhann Ólafur varði glæsilega.
19.mín Gummi Ben segist ekki vera klár en átti þó ágæta móttöku á hliðarlínunni rétt í þessu, smá Maradonna í þessu hjá honum. Lítið að gerast annars á vellinum.
14.mín Annað dauðafæri hjá Grindvíkingum er gott spil endaði með skoti frá Jósef Kristni við markteigshornið en Jóhann Ólafur varði vel í horn.
12.mín Gestunum gengur afar illa að halda boltanum innan liðsins og sækja á móti vindinum og Grindvíkingar eru mun líklegri í byrjun.
9.mín Bæði lið með ágæt upphlaup, Gilles Ondo Grindavíkurmegin og Jón Daði fyrir Selfoss strax í kjölfarið en ekkert varð úr.
8.mín Magnað færi hjá Grindavík sem Gilles Ondo klúðraði herfilega. Grétar Ólafur sem var í fínu færi líka rendi boltanum á Ondo sem var fyrir nánast opnu marki en skaut framhjá. Vörn Selfyssinga var afar illa grátt leikin þarna.
5.mín Heimamenn eru öllu sprækari til að byrja með og reyna að finna Ondo í framlínunni enda er hann eldsnöggur.
2.mín Það er þó nokkur hreyfing á logninu hérna í Grindavík og sækja heimamenn undan vindi í fyrri hálfleik í átt að búningsklefunum fyrir staðkunnuga.
1.mín Þá er búið að flauta til leiks á Grindavíkurvelli og það eru Selfyssingar sem byrja með boltann.
19:13 Aðal fréttaritari Fótbolta.net í Grindavík var vant við látin að þessu sinni og því sitjið þið uppi með undirritaðan. Sá tók sig víst til og fór holu í höggi á meistaramótinu hérna í Grindavík í gær og ku það vera töluvert yfir getu miðið við félaga hans hérna í Grindavík.
19:13 Þá er allt klárt hér í Grindavík og dágóður slatti mættur á völlinn þó stúkan hér villi smá fyrir enda afar stórt mannvirki. Nú er bara beðið eftir að liðin komi inn á völlinn sem ætti að gerast á næstu mínútu.
19:10: Þá eru byrjunarliðin klár og eru svohljóðandi
Grindavík Rúnar Dór Daníelsson, Auðunn Helgason, Jóhann Helgason, Páll Guðmundsson, Matthías Örn Friðriksson, Scott Ramsey, Orri Freyr Hjaltalín, Loic Mbang Ondo, Gilles Mbang Ondo, Jósef Kristinn Jósefsson, Grétar Ólafur Hjartarson.
Varamenn: Óskar Pétursson, Óli Balldur Bjarnason, Gunnar Þorsteinsson, Vilhjálmur Darri Einarsson, Guðmundur Egill Bergsteinsson, Jóhann Helgi Aðalgeirsson, Alexander Magnússon.
Selfoss Jóhann Ólafur Sigurðsson, Agnar Bragi Magnússon, Kjartan Sigurðsson, Ingólfur Þórarinsson, Sævar Þór Gíslason, Davíð Birgisson, Guðmundur Þórarinsson, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Jón Daði Böðvarsson, Jón Guðbrandsson, Einar Ottó Antonsson.
Varamenn: Elías Örn Einarsson, Sigurður Eyberg Guðlaugsson, Arilíus Marteinsson, Andri Freyr Björnsson, Jón Steindór Sveinsson, Gunnar Rafn Borgþórsson.
18:30: Sæl og velkomin í beina textalýsingu frá Grindavíkurvelli þar sem leikur heimamanna og Selfyssinga fer fram. Leikurinn hefst á slaginu 19:15 og um er að ræða svo mikinn fallbaráttuslag eins og staða liðanna er núna að þetta er næstum níu stiga leikur. Byrjunarliðin koma hér inn innan skamms og er líklegt að bæði lið byrji með ellefu manns inná.





