Grindavík 1 - 1 Selfoss
1-0 Grétar Ólafur Hjartarson (22)
1-1 Jón Daði Böðvarsson (55)
1-0 Grétar Ólafur Hjartarson (22)
1-1 Jón Daði Böðvarsson (55)
Það er óhætt að segja að viðureign Grindvíkinga og Selfyssinga hafi verið ansi kaflaskipt í rokinu í Grindavík. Stífur vindur var á annað markið og nýtti hvort lið sér það einu sinni og lauk leik því með 1-1 jafntefli. Bæði lið geta þó hæglega nagað sig í handarbökin fyrir að hafa ekki gert betur enda þó nokkuð um dauðafæri sem fóru í súginn og þá sérstaklega í fyrri hálfleik hjá Grindvíkingum.
Heimamenn voru miklu sterkari í fyrri hálfleik og strax á 8.mínútu var hreinlega magnað að Gilles Ondo hafi ekki komið þeim yfir. Grétar Ólafur sem var í fínu færi líka sendi boltann á Ondo sem var fyrir nánast opnu marki en skaut framhjá. Vörn Selfyssinga var afar illa grátt leikin þarna og var greinilega í tómu basli með hinn sterka Gilles Ondo.
Á 14.mínútu átti Jósef Kristinn annað dauðafæri eftir gott spil sem endaði með skoti við markteigshornið en Jóhann Ólafur besti maður vallarins varði vel í horn.
Eftir um tuttugu mínútna leik var Gilles Ondo enn að stríða vörn Selfyssinga en laust skot hans var varið. Strax í næstu sókn komst Grétar Ólafur Hjartarson einn í gegn og honum urðu ekki á nein mistök og skoraði hann örugglega, klárlega fyllilega sanngjörn staða.
Eftir þetta fóru gestirnir aðeins að sína smá lífsmark en komust lítt áleiðis gegn sterkri vörn Grindvíkinga og raunar var lúmskt skot frá Scott Ramsey það hættulegasta sem kom á þessum kafla.
Á 33.mínútu gerðist nokkuð óvenjulegt atvik er Grindvíkingar fengu óbeina aukaspyrnu innan teigs. Einar Ottó var dæmdur brotlegur fyrir hindrun en það færi var illa nýtt hjá heimamönnum, Ramsey kom með laust skot sem Jóhann Ólafur átti ekki í neinu basli með. Þeir fara þó líklega yfir þetta í Pepsi mörkunum í kvöld enda ekki oft sem dæmt er óbein aukaspyrna innan teigs.
Síðustu fimm mínútur seinni hálfleiks voru Selfyssingar mun sterkari og var Kjartan Sigurðsson nálægt því að pota boltanum inn eftir góðan undirbúning hjá Jóni Daða en Rúnar Dór varði vel í markinu. Gestirnir voru engu að síður afar fegnir að sleppa með 1-0 í hálfleik.
Strax í upphafi seinni hálfleiks var þessu fullkomlega öfugt farið og Selfyssingar pressuðu stíft á mark heimamanna. Á 49.mínútu átti aukaspyrnusérfræðingurinn Guðmundur Þórarinsson frábært skot í þverslánna eftir aukaspyrnu af þrjátíu metra færi, Jón Guðbrandsson náði frákastinu og skaut en Gríndvíkingar vörðust. Boltinn barst til Davíðs Birgssonar sem skoraði af stuttu færi en var dæmdur rangstæður! Erfitt að dæma þetta úr fjölmiðlastúkunni en ljóst að allt annað Selfoss lið kom inná í seinni.
Á 54.mínútu var Gilles Ondo enn eina ferðina rétt búinn að klára leikinn fyrir Grindavík er hann fór illa með Kjartan Sigurðsson í vörn Selfoss. Nú sendi hann góða sendingu á Pál Guðmundssoon sem var í dauðafæri en skaut yfir.
Stuttu seinna jöfnuðu Selfyssingar og var þar að verki Jón Daði Böðvarsson eftir hornspyrnu frá Guðmundi Þórarinssyni. Hann skallaði í slánna og inn. Reyndar er ekki alveg ljóst hvort að það var Jón Daði sem átti síðustu snertingu á boltann eða Auðunn Helgason miðvörður Grindavíkur en við gefum Jóni Daða það þar til annað kemur í ljós. Þetta mark hafði legið nokkuð í loftinu líkt og mark heimamanna í fyrri hálfleik.
Tíu mínútum síðar héldu margir á vellinum að Gilles Ondo komið Grindvíkingum aftur yfir er hann komst einn í gegn eftir góðan undirbúning frá Grétari Ólafi en skot hans fór í hliðarnetið.
Gestirnir voru síðan öllu líklegri á lokakaflanum þó lítið hafi verið um opin færi og niðurstaðan því nokkuð sanngjarnt 1-1 jafntefli, eitthvað sem hvorugt lið er samt líklega sátt við.
Grindavík: Rúnar Dór Daníelsson, Auðunn Helgason, Jóhann Helgason, Páll Guðmundsson, Matthías Örn Friðriksson, Scott Ramsey, Orri Freyr Hjaltalín, Loic Mbang Ondo, Gilles Mbang Ondo, Jósef Kristinn Jósefsson, Grétar Ólafur Hjartarson.
Varamenn: Óskar Pétursson, Óli Balldur Bjarnason, Gunnar Þorsteinsson, Vilhjálmur Darri Einarsson, Guðmundur Egill Bergsteinsson, Jóhann Helgi Aðalgeirsson, Alexander Magnússon.
Selfoss Jóhann Ólafur Sigurðsson, Agnar Bragi Magnússon, Kjartan Sigurðsson, Ingólfur Þórarinsson, Sævar Þór Gíslason, Davíð Birgisson, Guðmundur Þórarinsson, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Jón Daði Böðvarsson, Jón Guðbrandsson, Einar Ottó Antonsson.
Varamenn: Elías Örn Einarsson, Sigurður Eyberg Guðlaugsson, Arilíus Marteinsson, Andri Freyr Björnsson, Jón Steindór Sveinsson, Gunnar Rafn Borgþórsson.
Dómari Átti ágætan dag.
Áhorfendur 778
Maður leiksins1. Jóhann Ólafur Sigurðsson 2. Gilles Ondo 3. Vindurinn Kári
Aðstæður Nokkuð stíft rok á annað markið sem hafði töluverð áhrif á leikinn.



