Selfyssingar náðu 2-2 jafntefli gegn Grindavík í kvöld og náðu þar með sínu fyrsta stigi í Pepsi-deildinni síðan 25.maí.
,,Þetta er ákveðinn léttir. Það verður að viðurkennast að það er skemmtilegra að tapa ekki þó að það sé pirrandi að klára ekki leikinn," sagði Jóhann Ólafur Sigurðsson markvörður Selfyssinga við Fótbolta.net eftir leikinn í kvöld.

,,Við vorum frekar daprir í fyrri hálfleik en komum betri út í siðari hálfleik og vorum betri fannst mér. Við hefðum alveg getað klárað þetta."
Jóhann Ólafur þurfti nokkrum sinnum að taka á því í fyrri hálfleiknum þegar Grindvíkingar fengu færi undan vindinum.
,,Það kemur fyrir þegar vindurinn er á annað markið, þá getur verið svolítið mikið stress í vörninni en þá verður maður að standa fyrir sínu."
Selfyssingar eru eftir úrslitin í kvöld sem fyrr í tíunda sætinu, stigi á undan Grindvíkingum.
,,Við höldum þeim jafnlangt fyrir aftan okkur og þeir voru fyrir þennan leik. Við náðum góðum leik á móti Blikum þó að við höfum tapað og þetta er áframhald af því."