,,Við fórum í þennan leik til að berjast eins og ljón. Við erum búnir að æfa eins og hórkallar í allan vetur til að koma okkur upp og við unnum þetta á baráttunni í kvöld," sagði Jóhann Helgi Hannesson framherji Þórs eftir 2-0 sigur liðsins á nágrönnunum í KA.
Jóhann Helgi skoraði sjálfur bæði mörk Þórsara í leiknum en þau komu í síðari hálfleik.
,,Ég er mjög sáttur. Það er alltaf gaman að skora, sérstaklega þegar mörkin telja í sigurleikjum."
Þórsarar eru eftir þennan leik stigi á eftir Leikni og Víkingi R. sem eru í tveimur efstu sætunum.
,,Við höldum vonandi áfram að vinna og hala inn stig. Það er ekki nóg að spila vel og ná í stig."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























