Þá er öðrum leikdegi lokið á Nikulásarmótinu VÍS sem fram fer á Ólafsfirði um þessa helgi. Veðrið hélt áfram að vera okkur hliðholt og mikill fjöldi gesta var á vallarsvæðinu. Leikirnir gengu mjög vel fyrir sig og gleði ríkjandi meðal keppanda, foreldra, þjálfara og annarra gesta. Að leikdegi loknum var til boða fyrir gesti og gangandi að horfa á úrslitaleikinn um 3.sæti á HM í Íþróttahúsinu á Ólafsfirði og myndaðist gríðarleg stemmning á meðal áhorfenda. Eftir kvöldmat var svo flott skemmtun við Tjarnarborg þar sem Gunnlaugur Helgason, Magnús G Ólafsson, Matthías Mattíhasson og Eyþór Ingi skemmtu miklum fólksfjölda í brekkunni við Tjarnarborg.
Kristján Orri, ljósmyndari Fótbolta.net er á Ólafsfirði og má hér sjá fyrri helming þeirra mynda sem hann tók í gær en seinni hluti myndanna kemur inn klukkan 09:30.
