Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 23. júlí 2010 13:27
Magnús Már Einarsson
Aðalvöllur Selfyssinga klár gegn Keflavík
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Selfyssingar hafa leikið heimaleiki sína á gervigrasi í sumar meðan unnið hefur verið við endurbætur á aðalvelli liðsins.

Nú er útlit fyrir að leikurinn gegn KR á sunnudag verði síðasti leikur Selfyssinga á gervigrasinu.

Sveinbjörn Másson, framkvæmdastjóri Selfyssinga, segir að völlurinn verði líklega klár í næsta heimaleik.

Nýja stúkan er að taka á sig mynd og grasið ætti einnig að vera klárt fyrir leik Selfyssinga og Keflvíkinga þann 16.ágúst.
Slapp
banner
banner