Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   sun 25. júlí 2010 22:22
Einar Matthías Kristjánsson
Umfjöllun: Sannfærandi sigur KR-inga
Einar Ottó Antonsson með boltann í leiknum í kvöld.
Einar Ottó Antonsson með boltann í leiknum í kvöld.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Diogo fær að líta rauða spjaldið.
Diogo fær að líta rauða spjaldið.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Selfoss 0-3 KR
0-1 Mark Rutgers (17.mín)
0-2 Guðjón Baldvinsson (27.mín)
0-3 Guðjón Baldvinsson (45.mín)
Rautt: Jordao Diogo (47.mín)

Það er óhætt að segja að leikur Selfoss og KR hafi ekki verið spennandi ef utan er skilið fyrsta korterið. Yfirburðir gestana voru miklir og 0-3 sigur síst of stór.

Heimamenn byrjuðu reyndar mun betur í leiknum og komu mjög ákveðnir til leiks og var Jón Daði Böðvarsson rétt búinn að koma þeim yfir eftir 20 sekúndna leik eftir góðan skalla að marki sem Lars Ivar varði vel í marki KR. Stuttu seinna voru Sævar Þór og Jón Guðbrandsson einnig ágengir við mark gestana.

KR-ingar unnu sig þó í rólegheitum inn í leikinn og náðu undirtökunum hægt og bítandi. Á 17.minútu fengu þeir sína fyrstu hornspyrnu í leiknum, en fyrir þá sem fylgst hafa með leikjum Selfyssinga í sumar er það svipað og að fá víti. Það kom líka á daginn að upp úr horninu kom fyrsta mark leiksins og var þar að verki Mark Rutgers sem setti boltann yfir linuna eftir þvögu í teignum. Klárlega við hæfi að maður sem heitir Mark skori fyrsta markið í leiknum.

Þetta mark virtist slá heimamenn töluvert út af laginu og KR-ingar nýttu sér það vel. Á 26.mínútu komst Guðjón Baldvinsson í gegn eftir frábæran undirbúning hjá Jordao Diogo en Jóhann Ólafur varði mjög vel frá honum. Strax í næstu sókn komst Guðjón aftur í gegn og í nokkuð svipaða stöðu og nú brást honum ekki bogalistin heldur hamraði boltann í fjær hornið.

Guðjón Baldvins kláraði síðan leikinn fyrir KR-inga á lokamínútu fyrri hálfleiks með því að pota boltanum yfir línuna eftir að Baldur Sigurðsson hafði skotið í þverslánna. Ekki erfiðasta mark sem Guðjón hefur skorað á ferlinum en telur jafn mikið og öll önnur mörk. 0-3 fyrir KR sem spilaði síðan undan smá vindi í seinni hálfleik.

Í hálfleik skipti Gummi Ben Yao Yao nýjum leikmanni Selfyssinga af velli fyrir Arilíus Marteinsson. Selfoss hóf leik með þrjá nýja leikmann í byrjunarliðinu og einn á bekknum sem kom inná undir lokin.

Seinni hálfleikur byrjaði með nokkrum látum er Sævar Þór Gíslason komst einn í gegnum vörn gestana en fékk spark aftanfrá frá Jordao Diogo, Jóhannes Valgeirsson mjög góður dómari leiksins gat ekkert annað gert en að reka Diogo af velli. Annar KR-ingurinn sem fær rautt fyrir að brjóta á Sævari í sumar. Selfyssingar því einum fleiri allan seinni hálfleik en náðu alls ekki að nýta sér það.

Rúnar Kristinsson nýr stjóri KR-inga brást við rauða spjaldinu með því að taka sóknarmanninn Kjartan Henry af velli og setti inná í hans stað Eggert Rafn Einarsson sem er varnarmaður. Liðið dró sig töluvert til baka og lokaði vel á allan sóknarleik heimamanna og beyttu á móti hættulegum skyndisóknum með Guðjón Baldvinsson eldfljótan og fremstan í flokki.

Þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum virtust heimenn endalega vera búnir að gefa þetta upp á bátin og virkuðu mun þreyttari en KR-ingar sem þó spiluðu erfiðan leik í Úkraínu í vikunni. Gunnar Örn Jónsson kom t.a.m. með lúmskt skot fyrir utan sem hafnaði í þverslánni og stuttu seinna komst Baldur Sigurðsson einn í gegnum steinsofandi vörn heimamanna en lét Jóhann Ólaf verja vel frá sér í horn. Uppúr horninu náði Bjarni Guðjónsson flottu skoti að marki sem Jóhann Ólafur besti leikmaður Selfyssinga varði mjög vel í horn.

Þetta var það síðasta markverða sem gerðist í leiknum og niðurstaðan því öruggur sigur KR sem byrja vel undir stjórn Rúnars Kristinssonar



Lið Selfoss: Jóhann Ólafur Sigurðsson, Agnar Bragi Magnússon, Guðmundur Þórarinsson, Martin Dohlsten, Stefán Ragnar Guðlaugsson, Einar Ottó Antonsson, Jean Stephane Yao Yao, Viktor Unnar Illugason, Jón Daði Böðvarsson, Sævar Þór Gíslason, Jón Guðbrandsson.
Varamenn: Elías Örn Einarsson, Arilíus Marteinsson, Kjartan Sigurðsson, Ingþór Jóhann Guðmundsson, Ingi Rafn Ingibergsson, Andri Freyr Björnsson, Guessan B Herve.

Lið KR: Lars Ivar Molsked, Grétar Sigfinnur Sigurðsson, Bjarni Guðjónsson, Kjartan Henry Finnbogason, Skúli Jón Friðgeirsson, Baldur Sigurðsson, Óskar Örn Hauksson, Mark Rutgers, Viktor Bjarki Arnarsson, Guðjón Baldvinsson, Jordao Diogo.
Varamenn: Þórður Ingason, Björgólfur Takefusa, Egill Jónsson, Auðunn Örn Gylfason, Hróar Sigurðsson, Gunnar Örn Jónsson, Eggert Rafn Einarsson.

Dómari: Jóhannes Valgeirsson
Aðstoðardómarar: Gunnar Sverrir Gunnarsson og Tomasz Jacek Napierajczyk
Eftirlitsmaður: Ólafur Ragnarsson
Áhorfendur: 1.064
Aðstæður: Gervigrasvöllur, smá vindur á annað markið en sæmilega hlýtt
Maður leiksins: Guðjón Baldvinsson
Slapp
banner