Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   sun 25. júlí 2010 23:12
Davíð Örn Atlason
Umfjöllun: FH með öruggan sigur í Hafnarfjarðarslagnum
Atli Viðar fagnar fyrra marki sínu.
Atli Viðar fagnar fyrra marki sínu.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Ólafur Páll lagði upp tvö mörk og skoraði eitt.
Ólafur Páll lagði upp tvö mörk og skoraði eitt.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Freyr Bjarnason sækir að Hilmari Rafni Emilssyni. Freyr fékk að líta rauða spjaldið.
Freyr Bjarnason sækir að Hilmari Rafni Emilssyni. Freyr fékk að líta rauða spjaldið.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
FH 3-1 Haukar
1-0 Atli Viðar Björnsson ('36)
2-0 Atli Viðar Björnsson ('56)
3-0 Ólafur Páll Snorrason ('62)
3-1 Arnar Gunnlaugsson ('66, víti)
Rautt: Freyr Bjarnason ('83

FH bar sigur úr bítum á Haukum í slagnum um Hafnarfjörð sem fram fór í Kaplakrika í kvöld.

Atli Viðar Björnsson skoraði tvö mörk og lagði upp eitt fyrir Ólaf Pál Snorrason en Arnar Gunnlaugsson, fyrrum leikmaður FH skoraði fyrir Hauka í þessum 3-1 sigri FH.

Sigurinn var fyllilega sanngjarn og síst of stór. Daði Lárusson átti flottan leik í marki Hauka og kom í veg fyrir að sigurinn væri stærri hjá Íslandsmeisturunum.

Fyrri hálfleikurinn var í rólegri kantinum og það stefndi allt í daufan leik eins og síðast þegar þessi lið mættust í annari umferð Íslandsmótsins.

Atli Viðar Björnsson kom með líf inn í leikinn þegar hann skoraði með skoti inni í vítateig Hauka eftir fyrirgjöf Ólafs Páls Snorrasonar.

1-0 var staðan þegar að Gunnar Jarl Jónsson, dómari flautaði til loka fyrri hálfleiks. Fyllilega sanngjörn úrslit.

Síðari hálfleikurinn var öllu fjörugri og tóku heimamenn í FH öll völd á vellinum. Atli Viðar bætti við öðru marki sínu og aftur var það eftir fyrirgjöf frá Ólafi Páli Snorrasyni sem hefur verið frábær fyrir FH í sumar.

Stuttu síðar skoraði Ólafur Páll og nú skiptu þeir félagarnir um hlutverk. Atli Viðar var óeigingjarn og lagði boltann út á Ólaf sem kláraði vel framhjá fyrrum samherja sínum sem stóð á milli stanganna hjá Haukum.

Þrátt fyrir alla þessa yfirburði FH í leiknum tókst Haukum að skora og var þar að verki Arnar Gunnlaugsson úr vítaspyrnu. Pétur Viðarsson gerði sig sekan um slæm varnarmistök áður en hann braut síðan á Úlfari Pálssyni.

Arnar tók spyrnuna og skoraði af miklu öryggi framhjá Gunnleifi landsliðsmarkverði. Arnar var að spila á miðjunni gegn Bjarka bróður sínum í fyrsta skipti en þeir hafa leikið saman með ÍA, FH og Val á Íslandi. Bræðurnir voru báðir teknir af velli fyrir leikslok enda báðir komnir vel á fertugsaldurinn.

FH-ingar fengu aragrúa af marktækifærum eftir þetta en eins og áður sagði var Daði Lárusson vel á verði í marki gestanna.

Haukarnir voru einum manni fleiri í tæpar tíu mínútur en þeim tókst ekki að nýta sér það og enduðu leikar 3-1 fyrir FH. Sanngjarn sigur sem hefði mátt vera stærri. Það sást klárlega hvaða lið varð Íslandsmeistari í fyrra og hvaða lið lenti í 2. sæti í 1. deild í fyrra.

Sóknin hjá FH var að spila gríðarlega vel með þá Atla Guðnason, Matthías Vilhjálmsson og markaskorarana Atla Viðar Björnsson og Ólaf Pál Snorrason. Fjórmenningarnir fóru oftar en ekki illa með Kristján Ómar Björnsson og félaga í vörninni í síðari hálfleik.

FH er ennþá í þriðja sætinu eftir sigurinn, sjö stigum á eftir toppliði ÍBV. Þá eru Haukarnir í neðsta sæti deildarinnar, einu stigi frá Grindavík og Selfoss sem eru fyrir ofan.


Byrjunarlið FH: Gunnleifur Gunnleifsson, Freyr Bjarnason, Pétur Viðarsson, Tommy Nielsen, Guðmundur Sævarsson (Jón Ragnar Jónsson), Atli Guðnason, Bjarki Gunnlaugsson (Gunnar Már Guðmundsson), Björn Daníel Sverrisson, Matthías Vilhjálmsson, Ólafur Páll Snorrason, Atli Viðar Björnsson.

Byrjunarlið Hauka: Daði Lárusson - Gunnar Ásgeirsson, Daníel Einarsson, Guðmundur Mete (Magnús Björgvinsson), Úlfar Hrafn Pálsson (Pétur Örn Gíslason) - Hilmar Geir Eiðsson, Kristján Ómar Björnsson, Jamie McCunnie, Ásgeir Ingólfsson - Arnar Gunnlaugsson (Garðar Ingvar Geirsson) - Hilmar Rafn Emilsson


Aðstæður: Völlurinn flottur en ágætis vindur.
Maður leiksins: Atli Viðar Björnsson og Ólafur Páll Snorrason.
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson.
Áhorfendur: 2726
banner
banner