Þá er komið að liðnum ,,Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar kíkjum við á stemninguna hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Að þessu sinni er farið í Fjallabyggð og stemningin skoðuð hjá KS/Leiftri.
Róbert Jóhann Haraldsson þjálfari liðsins svaraði nokkrum spurningum.
Eldra efni úr "Hvað er að frétta?"
Að þessu sinni er farið í Fjallabyggð og stemningin skoðuð hjá KS/Leiftri.
Róbert Jóhann Haraldsson þjálfari liðsins svaraði nokkrum spurningum.
Eldra efni úr "Hvað er að frétta?"
Hvernig er stemningin hjá KS/Leiftri?
Stemningin er búin að vera fín undanfarið. Það kom smá bakslag þegar Raggi Hauks ákvað að taka sér frí og það tók smá tíma að koma hlutunum í gang aftur. Við höfum verið að taka stig í leikjunum og þegar leikir vinnast þá er gaman og allt starf mun auðveldara. Bæjarbúar eru farnir að tala vel um liðið og vonandi að þeir fjölmenni nú á næstu tvo heimaleiki sem verða hér á Siglufirði.
Er mikill fótboltaáhugi í Fjallabyggð?
Já, fótboltinn er lang stærstur hér og ótrúlegt hvað stórt hlutfall af krökkum æfa hjá KS og Leiftri. Við höfum verið að gera mjög vel við okkar krakka í formi niðurgreiðslu æfingagjalda og ýmissa fríðinda. Þetta gerir foreldrum kleift að senda börnin sín á æfingar án þess að það komi niður á fjárhag heimilanna. Það er búið að vera mikil uppbygging í gangi hjá okkur og þegar göngin opna í haust þá opnast enn meiri möguleikar að gera KS/Leiftur að virkilega sterku félagi.
Ertu ánægður með gengi liðsins að undanförnu?
Eins og ég nefndi áðan þá tók þetta smá tíma eftir að Raggi hætti. Ég tók nokkra leiki í það að skoða og prófa leikmenn, því ég hafði lítið fylgst með á s.l. ári. Við settum okkur markmið og við erum á áætlun samkvæmt því. Margir hafa fengið sénsinn sem er gott mál en það getur líka verið erfitt þegar maður hrærir of mikið í byrjunarliðinu. En við erum bjartsýnir á framhaldið.
Hver eru markmið ykkar það sem eftir er tímabils?
Markmiðin eru einföld, að láta unga og efnilega heimamenn fá reynslu í 2.
deild. Eftir að ég tók við, þá ákvað ég það að við þyrftum ekki að bæta neitt við hópinn í félagaskiptaglugganu. Við værum með nægan mannskap og það yrði keyrt á honum út tímabilið. Að hanga í 2-3 efstu liðunum væri gaman svo að það yrði smá spenna í þessu. Núna erum við 9 stigum eftir BÍ/Bolungarvík, en þeir eiga tvo erfiða úti-leiki á næstunni, á Blönduósi og á Sigló. Eftir þá leiki tel ég að línur munu skýrast.
Hvernig er liðið byggt upp?
Liðið er byggt uppá heimamönnum. Við erum með tvo útlendinga, en annar var fenginn til félagsins til að sjá um þjálfun á markmönnum félaganna. Hann hefur reyndar spilað nokkra leiki vegna meiðsla Halldórs markmanns. Liðið er líka mjög ungt ásamt því að vera með nokkra gamla refi eins og Agga Sveins og Hörð Má.
Hvað hefur komið þér á óvart í fyrri hluta móts?
Í raun hefur lítið komið mér á óvart, nema kannski það að Víkingur Ó og BÍ/Bolungarvík sé búin að draga sig frá pakkanum. Það virðast allir geta unnið alla, en það hefur verið stöngin inn hjá þessum tveim félögum. Þau eru ekki þetta mikið betri en hin liðin í deildinni, en það þarf meðbyr og heppni til að hlutirnir gangi upp. Einnig verð ég að nefna dónmgæsluna í deildinni, við höfum verið að fá frábæra dómara sem er virkilega starfi sínu vaxnir og leggja greinilega mikinn metnað í starf sitt, en svo hafa einnig dómarar verið að dæma í deildinni sem ég myndi ekki einu sinni leyfa að dæma á Pæjumótinu. Það virðist ekki skipta neinu máli hvernig dómari stendur sig, alltaf fær hann ný og ný verkefni. Þetta er slæmt, því að félögin, leikmenn og stjórnir eru að leggja gífurlega vinnu í að halda úti góðu starfi og svo geta einstaklingar skemmt svo auðveldlega fyrir.
KSÍ mætti setja miklu meiri metnað í dómgæsluna hér á landi og að vera dómari ætti að vera eftirsóknarvert starf. Það mætti greiða mun betur fyrir dómgæslu og setja miklu hærri kröfur á dómarana. Það er frábært að stjórna liði sínu í leik þar sem dómarinn er að sinna sínu, en það getur verið jafn ömurlegt þegar dómari skemmir leikina.
Hvaða lið heldur þú að verði að berjast um að komast upp í fyrstu deild?
Víkingur Ó eru komnir upp, það er ljóst. Það er spurning hvernig BÍ/Bolungarvík koma útúr næstu tveim leikjum eins og ég nefndi áðan. Með sigrum þar ættu þeir að vera komnir langleiðina upp.
Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um:
KS hefur aldrei skipt um kennitölu frá því það var stofnað (geri aðrir
betur:-))
Eitthvað að lokum?
Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur hjá fótbolti.net fyrir góða og skemmtilega umfjöllun um boltann hér á landi. Áfram KS/Leiftur......



