FH mætir Víkingi Ólafsvík í undanúrslitum VISA-bikarsins í Kaplakrika klukkan 19:15 kvöld.
Ólafsvíkingar leika í annarri deild en Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, segir að liðið muni ekki vanmeta andstæðinga sína í kvöld.
Ólafsvíkingar leika í annarri deild en Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, segir að liðið muni ekki vanmeta andstæðinga sína í kvöld.
,,Ég neita að trúa því að þegar þú ert kominn í undanúrslit bikars að þú farir að vanmeta andstæðinginn," sagði Heimir við Fótbolta.net í gær.
,,Það er engin forsenda fyrir því að vanmeta Víking Ólafsvík. Ég sá þá spila á laugardaginn á móti KS/Leiftri og ég sá leikinn á móti Stjörnunni í bikarnum."
,,Þeir eru með mjög gott lið, unga spræka stráka og góða útlendinga. Þeir eru vel skipulagðir og með hættulega menn í framlínunni."
Fjölmargir Ólafsvíkingar ætla að mæta á leikinn en Heimir vonar að stuðningsmenn FH fjölmenni einnig.
,,Það er mikil stemning fyrir leiknum og auðvitað vona ég að aðdáendur FH mæti. Þeir sýndu frábæran stuðning í leiknum á móti Haukum á sunnudaginn og ég vona að það verði framhald á því," sagði Heimir að lokum.





