Einar Hjörleifsson markvörður Víkings Ólafsvíkur á von á hörku skemmtun er liðið mætir FH í undanúrslitum VISA-bikarsins í dag.
Þetta er án nokkurs vafa stærsti leikur í sögu Víkings sem leikur í 2. deild.
Þetta er án nokkurs vafa stærsti leikur í sögu Víkings sem leikur í 2. deild.
,,Stemningin er svona að aukast, það hefur gefist lítill tími til að hugsa um þennan leik því það er búið að spila svo þétt. Við höfum ekkert komist í að spá í þetta en það er að koma núna. Það er mikil eftirvænting," sagði Einar í samtali við Fótbolta.net.
,,Þetta verður klárlega skemmtileg upplifun sama hvernig fer en við ætlum ekki að mæta með neinu öðru hugarfari en að vinna leikinn. Það er allt hægt í þessu."
Einar segir að menn meigi ekki fara fram úr sér en ekki heldur sýna FH of mikla virðingu.
,,Það má ekki sýna þeim of mikla virðingu og það má heldur ekki fara fram úr sér. Þetta er FH, þeir eru búnir að vera Íslandsmeistarar í mörg ár, eru með besta markvörð landsins og ef ekki besta lið landsins ef út í það er farið. Menn meiga ekki fara fram úr sér og gera eitthvað sem þeir ráða ekki við."
,,Það er bullandi stemning í fólki að mæta á völlinn, það er búið að plana grilveislu í Hafnafirði. Það á að grilla og þar verða bolir og derhúfur, við ætlum að reyna að setja okkar bláa lit upp í stúku og ég býst við að það verði fult af fólki."
,,Þetta gæti orðið okkar 12 maður og það sama á við um FH, þeir hafa sýna stuðningsmenn sem gætu orðið þeirra 12 maður. Við skulum bara vona að það fari ekki út í það að það verði 13 leikmenn," sagði Einar að lokum í samtali við Fótbolta.net.



