Tvisvar í viku sýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina hér á Fótbolta.net. Að þessu sinni er það Jóhann Helgi Hannesson framherji Þórs.
Jóhann hefur leikið vel með Þórsurum í fyrstu deildinni í sumar en hann er búinn að skora sex mörk.
Smellið hér til að sjá hina hliðina á fleiri leikmönnum
Jóhann hefur leikið vel með Þórsurum í fyrstu deildinni í sumar en hann er búinn að skora sex mörk.
Smellið hér til að sjá hina hliðina á fleiri leikmönnum
Fullt nafn: Jóhann Helgi Hannesson
Gælunafn: Jói, Jochi, Jóakim, Jógvan, Jósef og Porno
Aldur: 20 ára
Giftur / sambúð? Í sambandi
Börn: Nei
Hvað eldaðir þú síðast? Kjúklingabringur, hrísgrjón og piparsósu
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? 2x kjúkling, pepperoni og svartur pipar
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fótbolti
Besta bíómyndin? The Godfather aldrei spurning
Uppáhaldsútvarpsstöð: X-ið
Hver er uppáhalds platan þín? Nýja Eminem platan er hrikalega sterk
Uppáhaldsdrykkur? Þar sem ég vinn hjá Vífilfell þá verð ég að segja Coca Cola
Uppáhalds vefsíða? fotbolti.net, thorsport.is og mjolnismenn.com
Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Já það eru fullt af litlum hlutum sem ég reyni að passa að séu í lagi, til að byrja með þá fæ ég mér snúð og kók í hádeginu á leikdegi. Svo þegar liðið er að taka lokaöskur áður en við löbbum út þá passa ég alltaf að ég sé með hendina efst.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Skora á hann
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? KA eða sameinuðu liði Þórs og KA
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Palli Gísla sem nú er þjálfarinn og svo kóngurinn Orri Afi Hjaltalín
Erfiðasti andstæðingur? Manni er leiðinlega erfiður stundum
Ekki erfiðasti andstæðingur? Gengur yfirleitt mjög vel á móti KA
Besti samherjinn? Ármann Pétur Ævarsson og Sveinn Óli Birgisson
Sætasti sigurinn? Síðasti leikur á móti KA, gleymi honum seint
Mestu vonbrigði? Ef við förum ekki upp
Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum? Man Utd
Uppáhaldsknattspyrnumaður? Rooney
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Albert Guðmunds
Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Ágúst Eðvald Hlynsson í Þór
Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Sveinn Elías Jónsson, segist vera kallaður Svenni sæti
Fallegasta knattspyrnukonan? Karen Nóadóttir í Þór
Grófasti leikmaður deildarinnar? Það er einn gaur í Þór með 7 gul spjöld sem á ekki að vera hægt
Besti íþróttafréttamaðurinn? Gummi Ben
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Nenad er hrikalegur á djamminu, Gunnlaugur kemur sterkur inn líka
Hefurðu skorað sjálfsmark? Nei hef ekki orðið þess heiðurs aðnjótandi
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar við vorum í 3. flokki þá fékk Krilli sinadrátt og lá eins og skata á vellinum en greyið maðurinn er svo stirður að hann þurfti hjálp og þá kom Sveinn Óli skokkandi og Krilli sagði hægri hægri en Sveinn Óli lyftir upp hægri löppinni frá sér séð og þá öskraði Krilli: Hin hægri fíflið þitt!
Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? 2007
Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Algjör snilld
Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Já þetta er upphafssíðan
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Markmenn verði ekki heilagir lengur
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Muse á Wembley
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Sprettir hjá Hreinsa
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Aron Gunnarsson
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Tungusíða 28
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Það er misjafnt, getur tekið allt að klukkutíma
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Lebron James
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já, körfubolti er snilldar sjónvarpsefni
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Landsleik gegn Dönum fyrir mörgum árum
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Nike Vapor
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Mér finnst danska og þýska alveg hrútleiðinleg fög
Vandræðalegasta augnablik? Þegar mamma gamla hljóp inná völlinn þegar ég meiddist í æfingaleik!
Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Hef spilað allar stöður vallarins með mfl nema markmann

