Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður Liverpool á Englandi er skráður í 25 manna hóp liðsins sem leikur í Evrópudeildinni í vetur.
Guðlaugur, sem er 19 ára gamall hefur verið að stíga upp í aðallið Liverpool í sumar og var til að mynda í keppnisferð liðsins í Sviss þar sem hann spilaði tvo leiki gegn Grasshopper og Kaiserslautern.
Hann kom inná í báðum leikjunum og lék 35 mínútur samtals, en var þó ekki í 20 manna hópnum sem flaug til Makedóníu þar sem Liverpool mætir FK Rabotnicki í undankeppni Evrópudeildarinnar í dag.
Þrátt fyrir það hefur félagið skráð hann í 25 manna hópinn sem leikur í keppninni og þá hefur hann einnig fengið treyjunúmerið 44 hjá Liverpool en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í gærdag.
Stuðningsmenn Liverpool hér á landi geta því loksins fengið sér treyju merkta honum, en hann er annar íslenski leikmaðurinn sem tekst að komast í aðallið félagsins þar sem Haukur Ingi Guðnason gerði slíkt hið sama 1998 þó án þess að spila leik.


