Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 28. júlí 2010 23:17
Fótbolti.net
Umfjöllun: BÍ/Bolungarvík skoraði sjö gegn Hvöt
Stefán Pálsson skrifar frá Ísafirði
Heimamenn fagna marki í kvöld.
Heimamenn fagna marki í kvöld.
Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson
Jónmundur Grétarsson fagnar einu af þremur mörkum sínum.
Jónmundur Grétarsson fagnar einu af þremur mörkum sínum.
Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson
BÍ/Bolungarvík 7-1 Hvöt
1-0 Gunnar Már Elíasson ('6)
2-0 Jómundur Grétarsson ('30)
3-0 Jómundur Grétarsson ('40)
4-0 Jómundur Grétarsson ('55)
5-0 Andri Rúnar Bjarnason ('60)
6-0 Andri Rúnar Bjarnason ('63)
7-0 Andri Rúnar Bjarnason ('68)
7-1 Trausti Eiríksson ('92)

Mikil stemning var fyrir leik BÍ/Bolungarvíkur og Hvatar frá Blönduósi sem fram fór á Torfnesvelli í kvöld. Fjölmennt var í brekkunni og mikið um Vuvuzela luðra sem mynduðu mikla stemningu meðal sumra, en gremju meðal annarra.

Leikurinn fór fjörlega af stað og strax á 6. mínutu skoraði Gunnar Már Elíasson eftir góðan undirbúnig frá bæði Emil Pálssyni og seinna góðri sendingu frá Hafþóri Atla Agnarssyni. Frábært mark og gott start fyrir það sem eftir átti að koma.

Stuttu seinna fékk Gunnar Már boltann úti á kantinum og setti háa fyrirgjöf inn á Hafþór sem fékk hann í lapprnar en lélegt skot á markið. Strax í næstu sókn vann Hafþór Atli aftur boltann, sendi góða stungu inn á Jónmund Grétarsson sem reyndi að leika á markvörðinn en tókst ekki.

Á 20.mínútu var Emil Pálsson með boltann við hornfánnan spilai vel á Jónmund sem kom með háa fyrirgjöf sem Andri Rúnar rétt missir af. Frábær sókn heimamanna.

Fyrstu 25 mínúturnar voru heima menn stanslaust í sókn og voru Hvatar menn lítið sem ekkert með boltann yfir á helmingi andstæðingsins. En þeir fengu síðan á 26 mínútu sitt fyrsta færi en Róbert Örn varði vel í markinu.

Fimm mínútum síðar fékk Emil Pálsson boltann á miðjum vellinum og átti glæsta háa sendingu á Jónmund Grétarsson sem kláraði þetta listavel. Renndi sér í boltann og setti hann í markið.

Milan Markovic var heppinn að fá ekki rautt spjald í þessum leik en hann gaf Jónmundi Grétarssyni olnbogaskot við litla kátínu heimamanna og féll sjálfur í jörðina og greip um andlit sér eins og sönnum hollywood leikara.

Á lokamínútum fyrri hálfleiks fékk Hafþór Atli boltann úti á kantinum og kom með góðan kross beint á kollinn á Jónmundi sem skallaði hann frábærlega í markið. 3-0 í hálfleik og heimamenn gátu ekki farið annað en sáttir inn í klefa.

Seinni hálfleikur fór rólega af stað en á 55. mínútu fengu heimamenn aukaspyrnu. Emil Pálsson tók spyrnuna nálægt hornfána andstæðinganna, Andri Rúnar náði boltanum, skaut í varnarmann Hvatar og féll boltinn svo fyrir Jónmund Grétarsson sem setti hann auðveldlega í markið. Þrenna hjá Jónmundi í sínum örðum leik fyrir BÍ/Bolungarvík. Gestirnir vildu fá rangstöðu dæmda og mótmæltu vel í dómara leiksins og endaði það með að þjálfari þeirra uppskar gult spjald.

60 mínuta og heimamenn ennþá í sókn. Gunnar Már átti góða fyrirgjöf á Emil sem ,,fake’aði” skotið lagði hann út á Andra Rúnar Bjarnason sem setti hann auðveldlega í fjærhornið.

En Andri var ekki hættur. Þremur mínútum síðar kom Gunnlaugur Jónasson upp kantinn sendi hann fyrir, Gunnar Már lét hann fara í gegnum klofið á sér, Andri tók boltann og setti hann auðveldlega í markið. Tvö mörk á 3 mínútum frá Andra.

Á 67.mínútu spilaði Gunnlaugur aftur vel á Andra Rúnar sem setti hann örrugt í hornið. 7-0 frábær staða fyrir heimamenn gegn gestunum frá Blönduósi sem ekki áttu mikinn séns í heimamenn.

Næstu mínútur voru mjög rólegar og hvorugt liðið náði að skapa sér hættuleg færi.

Það var ekki fyrr en á lokamínútum leiksins er gestirnir sækja hratt upp kantinn og varnarmenn heimamanna gleymdu sér og Trausti Eiríksson stakk sér bakvið varnarmennina og setti hann í netið framjá Róberti Erni. 7-1 lokastaða, fullkomnlega verðskuldaður sigur hjá heimamönnum sem hefðu getað sett mun fleiri mörk í þessum leik.
Slapp
banner
banner
banner