,,Það er alltaf leiðinlegt að tapa og það var stutt í úrslitaleikinn þannig að þetta er vissulega svolítið sárt en við getum gengið stoltir af velli hér í dag og við erum ekki að skammast okkur fyrir þennan leik," sagði Brynjar Gauti Guðjónsson fyrirliði Víkings Ólafsvíkur eftir 3-1 tap liðsins gegn FH í undanúrslitum VISA-bikarsins í kvöld.
Ólafsvíkingar náðu að jafna undir lok fyrri hálfleiks skömmu eftir að hafa lent undir.
,,Það er ótrúlegur karakter í þessu liði og við sýndum það bæði í Stjörnuleiknum og svo núna að við hættum aldrei."
Ólafsvíkingar fjölmenntu á leikinn og létu vel í sér heyra í stúkunni í Kaplakrika.
,,Mér leið eins og það væru 5000 manns í stúkunni allan leikinn. Stúkan var öll blá, þetta var magnaður stuðningur og frábært að fá svona mikið af fólki til að styðja Víking í dag."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en í miðju viðtali fær Brynjar Gauti meðal annars bolta í hausinn frá samherja sínum.























