KA 3-2 ÍR
0-1 Kristján Ari Halldórsson ('4)
1-1 David Disztl ('18)
2-1 David Disztl ('31)
2-2 Karl Brynjar Björnsson ('32)
3-2 Steinn Gunnarsson ('91)
0-1 Kristján Ari Halldórsson ('4)
1-1 David Disztl ('18)
2-1 David Disztl ('31)
2-2 Karl Brynjar Björnsson ('32)
3-2 Steinn Gunnarsson ('91)
Það var flott veður þegar KA-menn sem eiga í hörku fallbaráttu mættu liði ÍR-inga úr Breiðholtinu sem er í baráttu á hinum enda töflunnar.
Það var góð stemning í stúkunni meðal stuðningsmanna KA sem voru fjölmennir en einnig voru hressir stuðningsmenn ÍR svo nóg var um að vera fyrir utan völlinn.
Þessir stuðningsmenn sem mættir voru á leikinn fengu eiginlega allt fyrir peninginn í fyrri hálfleiknum. Leikurinn var bara rétt hafinn þegar Kristján Ari Halldórsson fékk sendingu inn fyrir og var einn á auðum sjó og kláraði færið vel gegn Sandori í marki KA og gestirnir skyndilega komnir í kjörstöðu.
KA-menn voru nokkra stund að jafna sig á þessu en leikurinn var mjög opinn í fyrri hálfleik og bæði lið að gefa færi á sér.
Á 18. mínútu kom svo jöfnunarmark frá KA. Eftir barning í kringum teig ÍR-inga barst hörkufastur bolti inn í teig ÍR-inga sem David Disztl náði að stýra í netið með kollinum og jafna metin.
Áfram héldu bæði lið að sækja og var leikurinn hraður og opinn. ÍR-ingar fengu nokkur skotfæri og KA-menn einnig en alltaf voru menn tilbúnir að komast fyrir boltann í báðum liðum og bægja hættunni frá.
KA-menn náðu að komast yfir á 31. mínútu en þá opnaðist vörn Breiðhyltinga upp á gátt og David Disztl slapp einn í gegn nánast frá miðju. David missti ekki marks og setti boltann í hornið og KA-menn allt í einu komnir með yfirhöndina.
Það varði ekki lengi. ÍR-ingar brunuðu fram í sókn og fengu aukaspyrnu. Aukaspyrnan kom inn á teig og þar var Karl Brynjar Björnsson sem skallaði í netið.
Eftir þetta róaðist hálfleikurinn aðeins niður og staðan 2-2 þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Síðari hálfleikurinn þróaðist öðruvísi. KA-menn stjórnuðu leiknum fyrsta hálftímann en svo náðu ÍR yfirhöndinni. Liðin sköpuðu sér ekki mörg opin færi en áttu fjöldan allan af fyrirgjöfum sem ekki náðist að reka endahnútinn á.
Allt stefndi svo í 2-2 jafntefli þegar KA-menn fengu aukaspyrnu á 91. mínútu. Andri Fannar Stefánsson tók spyrnuna og gaf góðan bolta á fjærstöng og þar var Steinn Gunnarsson mættur og stangaði boltann í netið.
KA-menn yfir 3-2 og leiktíminn fjaraði út. Þeir gulklæddu fögnuðu gríðarlega enda mikilvæg stig í botnbaráttunni og þeir fögnuðu stuðningsmönnum sínum gríðarlega eftir leikinn sem voru væntanlega ánægðir með sína menn.



