Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, segir að ekkert tilboð sé komið í Steinþór Frey Þorsteinsson frá sænska félaginu Örgryte.
Steinþór fór fyrr í vikunni til Örgryte á reynslu en Bjarni var ekki ánægður með að sænska 1.deildarfélagið hafi fengið hann til sín núna þegar Íslandsmótið er í gangi.
Steinþór fór fyrr í vikunni til Örgryte á reynslu en Bjarni var ekki ánægður með að sænska 1.deildarfélagið hafi fengið hann til sín núna þegar Íslandsmótið er í gangi.
,,Maður hefði viljað sjá önnur vinnubrögð á þessu og meiri fagmennsku að mínu mati," sagði Bjarni við Fótbolta.net í gær.
,,Hér er Íslandsmót í fullum gangi og þeir eiga auðvitað að mæta hingað í stað þess að lokka þessa drengi út þegar að þeir eru á fullu."
,,Það er í leikjum sem þeir vilja sjá þessa menn, hvað þeir geta og hvað þeir geta ekki."
Steinþór Freyr hefur verið öflugur í liði Stjörnunnar í sumar líkt og á síðasta tímabili en hann kom til félagsins frá Breiðabliki fyrir um það bil einu og hálfu ári síðan.


