Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 29. júlí 2010 09:06
Hörður Snævar Jónsson
Sam Tillen: Vonandi komumst við aftur í úrslit
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
,,Ég er spenntur fyrir leiknum, það væri gaman að komast í úrslitin líkt og í fyrra. Þetta er stór leikur fyrir okkur," sagði Sam Tillen leikmaður Fram en liðið mætir KR í undanúrslitum VISA-bikarsins í dag.

Liðið sem vinnur leikinn mætir FH í úrslitum en Fram tapaði fyrir Breiðablik í bikarúrslitum í fyrra.

,,Vonandi komumst við aftur í úrslit, þetta var svekkjandi á síðasta ári því mér fannst við betri í þeim leik og hafa átt skilið að vinna. Það er alltaf erfitt að tapa í vítaspyrnukeppni, ef við vinnum á morgun getum við gert upp fyrir það."

,,Þetta voru góð úrslit gegn Breiðablik síðast og ætti að gefa okkur sjálfstraust í dag. Það var gaman að vinna þá því við höfðum ekki unnið þá lengi, það voru allir sáttir með þessi úrslit. Þetta gefur okkur sjálfstraust."


KR vann leik liðanna í deildinni í dramatískum leik þar sem Fram var yfir 2-0 þegar KR-ingar skoruðu þrjú.

,,Við töpuðum 3-2 fyrir KR í deildinni og það tap sveið. VIð vorum mjög góðir í 75. mínútur en var svo refsað. Við vitum að þeir eru með mjög gott lið og við meigum ekki gera svona aftur."

,,Þegar lið fær nýjan þjálfara þá kemur ferskur andblær og við vitum það. Þetta verður erfiður leikur,"
sagði hinn afar geðþekki, Sam Tillen að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner
banner
banner