Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
   fim 29. júlí 2010 00:37
Hafliði Breiðfjörð
Tómas Ingi: Okkur yrði slátrað í úrvalsdeild
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Mér sýnist það vera þannig að það er orðið langt í þá sem eru efstir og mér finnst við ekki hafa hóp í að fara í efstu deild, og töluvert frá því. Við þurfum að byggja upp, okkur yrði slátrað í úrvalsdeild með þennan mannskap svo ég held að við þurfum að sætta okkur við það að við erum 1. deildarlið í dag og vonandi verðum við það á næsta ári og enn betra," sagði Tómas Ingi Tómasson þjálfari HK eftir 2-2 jafntefli gegn Gróttu í kvöld.

,,Ég er ekki sáttur, hefði ekki verið það fyrir leik og er það ekki eftir leik. Við spiluðum fyrri hálfleikinn illa og vorum slakir á boltann, vorum nervous, hræddir, og þannig vinnur maður ekki fótboltaleiki."

,,Við hleyptum þeim inn í allskonar hlaup sem við vorum búnir að fara yfir sem ég héld að við værum búnir að ræða nógu vel til að stoppa. En því miður náðu þeir að koma til baka og svo koma þeir og skora fáránlegasta mark sem ég hef séð skorað. Hann snýr sér í fjóra hringi og skýtur svo í markið. Við erum bara ekki að standa vörnina nógu vel."


Nánar er rætt við Tómas Inga í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner