Manchester United 5 - 2 MLS All-Stars
1-0 Federico Macheda ('1)
2-0 Federico Macheda ('12)
2-1 B.Ching ('64)
3-1 Darron Gibson ('70)
4-1 Tom Cleverley ('73)
5-1 Javier Hernandez ('84)
5-2 D. De Rosario ('90)
1-0 Federico Macheda ('1)
2-0 Federico Macheda ('12)
2-1 B.Ching ('64)
3-1 Darron Gibson ('70)
4-1 Tom Cleverley ('73)
5-1 Javier Hernandez ('84)
5-2 D. De Rosario ('90)
Leikmenn Manchester United áttu ekki í vandræðum með úrvalslið MLS-deildarinnar bandarísku og unnu 5-2 stórsigur í skemmtilegum sjö marka leik í Houston í nótt.
Hinn ítalski Federico Macheda skoraði fyrstu tvö mörk United snemma leiks og staðan 2-0 í hálfleik. Úrvalsliðið náði að minnka muninn um miðjan seinni hálfleik þegar varamaðurinn Ching skallaði knöttinn í netið eftir aukaspyrnu.
Rauðu djöflarnir girtu sig hins vegar í brók og sýndu meistaratakta í kjölfarið á þessari mótspyrnu heimamanna. Darron Gibson skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu sem hafnaði efst í markhorninu.
Líttþekktur tvítugur leikmaður að nafni Tom Cleverley bætti fjórða markinu við með afar laglegum hætti en sá ágæti piltur var á láni hjá Watford á síðustu leiktíð.
Það var síðan nýjasta skrautfjöður liðsins, Javier Hernandez landsliðsmaður Mexíkó sem skoraði fimmta markið eftir að rangstöðutaktíkin brást hjá stjörnuliðinu. Einn á móti markverðinum vippaði kappinn knettinum auðveldlega í netið. Rosario náði að klóra í bakkann fyrir úrvalsliðið á lokamínútunni og lokatölur 5-2.

