Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 29. júlí 2010 09:55
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Mark Hughes tekur við Fulham
Fulham hefur náð samkomulagi við Mark Hughes um að hann verði næsti knattspyrnustjóri félagsins en þetta segja heimildir BBC.

Búist er við að Fulham gangi frá samningum við Hughes í dag eða á morgun.

Hughes, sem er 46 ára, var rekinn frá Manchester City í desember síðastliðnum en hann hefur verið í fríi frá fótbolta síðan þá.

Hughes mun taka við Fulham af Roy Hodgson sem tók við liði Liverpool á dögunum.

Fulham reyndi upphaflega að fá Martin Jol þjálfara Ajax en hollenska félagið vildi ekki leyfa honum að fara.
Slapp
banner