Guðný Björk Óðinsdóttir er gengin aftur í raðir Kristianstad hjá Svíþjóð eftir að hafa leikið með Val á láni síðustu vikurnar.
Guðný Björk hafði komið til Vals á láni um miðjan júlí en hlé er á sænsku kvennadeildinni.
Valur hefur átt í meiðslavandræðum upp á síðkastið og auk endurkomu Guðnýjar tók Laufey Ólafsdóttir fram skóna að nýju.
Guðný Björk lék þrjá leiki með Val á þessum tíma. Stórsigur á FH í deildinni, sigur á Þór/KA í undanúrslitum bikarsins og svo tapleikinn gegn Fylki í Árbænum í fyrrakvöld.
Hún heldur nú til Svíþjóðar þar sem styttist í að sænska kvennadeildin hefjist að nýju eftir sumarfrí.


