Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 29. júlí 2010 11:21
Magnús Már Einarsson
Guðjón Baldvinsson: Ekki leiðinlegt að bögga Hannes áfram
Guðjón í bikarúrslitum með KR árið 2008.
Guðjón í bikarúrslitum með KR árið 2008.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það var gaman síðast þegar ég var í þessari keppni og ég vil komast aftur í úrslitaleikinn," sagði Guðjón Baldvinsson framherji KR en liðið mætir Fram í undanúrslitum VISA-bikarsins í kvöld.

Guðjón varð bikarmeistari með KR árið 2008 en í kvöld mætir hann félaga sínum Hannesi Halldórssyni markverði Fram.

,,Við Hannes erum fínir félagar úr Stjörnunni. Ég hef haft yfirhöndina hingað til og alltaf sett eitt og eigum við ekki að segja að ég haldi því áfram. Það væri ekki leiðinlegt að halda áfram að bögga hann aðeins."

Guðjón var frá keppni vegna meiðsla í nokkrar vikur fyrr á tímabilinu en hann er kominn af stað á nýjan leik og skoraði tvívegis gegn Selfyssingum um síðustu helgi.

,,Ég vona að maður sé kominn á skrið núna. Þetta var hundleiðinlegt tímabil þegar maður var uppi í stúku að horfa á leiki. Maður er með uppsafnaða krafta sem maður þarf að nýta."

Þjálfaraskipti urðu hjá KR á dögunum þegar Rúnar Kristinsson tók við liðinu af Loga Ólafssyni.

,,Það var svolítið sjokk að Logi skyldi vera rekinn og menn áttuðu sig á því að við þyrftum að fara að gera eitthvað af alvöru. Rúni er atvinnumaður og kann þetta allt, hann er hrikalega flottur og ég er rosalega ánægður með hann," sagði Guðjón að lokum.
Slapp
banner
banner