Noko Matlou knattspyrnukona ársins í Afríku árið 2008 er gengin til liðs við ÍBV og hefur þegar fengið félagaskipti með sínu nýja félagi.
Matlou var nokkuð í umræðunni á síðasta ári þegar allt benti til þess að hún væri að ganga til liðs við KR.
Þá höfðu staðið yfir deilur milli félags hennar í Suður Afríku, Brazilian Ladies FC, og Mike Fola umboðsmanns hennar því félagið sagði reynt að selja hana á bakvið sig.
Rætt var við Rúnar Kristinsson yfirmann knattspyrnumála hjá KR í Suður Afrískum fjölmiðlum á þeim tíma.
Hann greindi þar frá því að Gareth O'Sullivan sem þá var nýhættur þjálfun liðsins hafi haft þessi mál á sinni könnu og KR væri að reyna að ná í suður afríska félagið til að átta sig á stöðu leikmannsins.
Ekkert varð úr félagaskiptum á þeim tíma en nú er ljóst að Matlou kemur til Íslands því hún er gengin til liðs við ÍBV.



