Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 29. júlí 2010 14:16
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Jovanovic: Ég er sérstakur
Milan Jovanovic nýr leikmaður Liverpool hafnaði Real Madrid til að ganga í raðir Liverpool.

Hann kemur frá Standard Liege á frjálsri sölu.

,,Ég held að 99 prósent af þeim sem ég talaði við skildu ekki af hverju ég hafnaði Real," sagði Jovaovic.

,,Kannski er ég sérstakur, ég hefði farið þangað sem hluti af hóp. Hefði mér langað að líða vel hefði ég verið áfram í Belgíu þar sem ég var stjarna."

,,Það er lítil deild en Standard Liege vann deildina tvisvar og bikarinn tvisvar á meðan ég var þar. Ég vann til tvennra persónulegra verðlauna, frá þjálfurum og leikmönnum og svo frá blaðamönnum. Ég var sáttur."

,,Real bauð mér eins árs samning með möguleika á öðru ári. Ég bað um fjögurra ára en þeir sögðu nei svo ég hafnaði þeim. Kannski eru þeir stærsta félag í heimi en ég vissi að það væru önnur stór félög á eftir mér."

Slapp
banner