Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 29. júlí 2010 11:32
Magnús Már Einarsson
Gunnar Kristjáns í FH á láni (Staðfest) - Má ekki spila gegn KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH hefur fengið Gunnar Kristjánsson til liðs við sig á láni frá KR út þetta tímabil.

Í lánssamningnum er ákvæði um að Gunnar megi ekki spila með FH þegar liðið mætir KR þann 30.ágúst næstkomandi.

Gunnar má heldur ekki leika með FH í úrslitum VISA-bikarsins ef að andstæðingarnir þar verða KR-ingar.

Gunnar er 23 ára gamall kantmaður sem getur þó einnig leikið með sem framherji.

Hann raðaði inn mörkum fyrir KR á undirbúningstímabilinu en hefur ekki fengið mikinn spiltíma í sumar.
Slapp
banner