Heimild: Soccernet
rauði herinn á vafalítið erfitt verkefni framundan í Makedóníu
Roy Hodgson bíður ekki öfundsvert verkefni að þreyta frumraun í herbúðum félagsins sem þjálfari liðsins gegn Rabotnicki frá Makedóníu á erfiðum útivelli í 3. umferð Evrópu-deildarinnar í kvöld.
Hodgson fór alla leið í úrslitaleikinn með Fulham í þessari sömu keppni á síðustu leiktíð en vegna leikjaálags leikmanna á heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku vantar marga lykilleikmenn í lið Liverpool í þessum fyrsta alvöru keppnisleik liðsins á tímabilinu.
Ensku landsliðsmennirnir Steven Gerrard, Joe Cole, Jamie Carragher og Glen Johnson eru meðal þeirra leikmanna sem ekki taka þátt í þessum fyrri leik liðsins á móti Rabotnicki í Skopje höfuðborg Makedóníu.
Þessir fjórir leikmenn hófu æfingar í síðustu viku og eru ekki komnir í nægilega gott leikform á meðan stjörnur á borð við Jose Reina, Fernando Torres, Dirk Kuyt og Ryan Babel eru ennþá að sleikja sólina í sínum sumarleyfum..
Lucas, Alberto Aquilani, Daniel Agger, Martin Skrtel og Sotirios Kyrgiakos koma til með að færa reynslu í þetta unga og óreynda lið. Nýju leikmennirnir, Milan Jovanovic og Danny Wilson eru einnig með í för og gætu spilað sinn fyrsta alvöru keppnisleik fyrir félagið.
Liðið spilaði tvo æfingaleiki í undirbúningi sínum fyrir þessa viðureign gegn Rabotnicki í kvöld. Þann fyrri gegn austurríska félaginu Grasshoppers en sá leikur endaði með markalausu jafntefli. Liverpool tapaði hins vegar fyrir Kaiserslautern 1-0 um síðustu helgi í Þýskalandi.
Nítján manna hópur Liverpool í kvöld: Cavalieri, Gulacsi, Kelly, Ince, Martin Skrtel, Daniel Agger, Danny Wilson, Kyrgiakos, Ayala, Darby, Shelvey, Eccleston, Amoo, Dalle Valle, Alberto Aquilani, Lucas, Spearing, David Ngog, Milan Jovanovic.



