Heimild: Reuters
Bruce Arena, knattspyrnustjóri Los Angeles Galaxy segir að David Beckham, leikmaður félagsins geti byrjað að æfa að nýju með liðinu í lok næsta mánaðar.
Beckham sleit hásin í marsmánuði síðastliðnum og missti þar af leiðandi af HM í Suður Afríku.
,,Ég held það sé séns á því að hann geti byrjað að æfa í lok ágúst," sagði Arenas við fréttamenn.
MLS deildinni lýkur í lok október en þá er úrslitakeppnin eftir. Úrslitakeppnin er spiluð í nóvember og LA Galaxy verður að öllum líkindum í henni.
,,Það er ómögulegt að segja til um hvort hann geti spilað eitthvað á þessu ári. Þetta eru erfið meiðsli, fyrir hvaða íþróttamann sem er."
,,Það er möguleiki á að hann geti spilað í MLS deildinni á þessari leiktíð en það er erfitt að segja til um það."




